Prenta
hþ : 2011-07-09 11:09:50
Liðið í 4. flokki kvenna er aldeilis að gera fína hluti í sumar. Eftir 5 leiki situr liðið í 2. sæti aðeins 2 stigum frá toppsætinu og á einn leik til góða á topplið KA. Guðný Vaka Björnsdóttir er búin að fara á kostum í sókninni og hefur skorðað 8 mörk í 4 leikjum og er markahæst í riðlinum. Hugrún Pálsdóttir sem á ættir sínar að rekja í LitluBrekku er skammt á eftir með 7 mörk. Sannarlega flottur árangur.
Staðan:
hþ : 2011-07-08 23:18:38
Tindastóll/Neisti spilaði sinn fjórða leik í sumar í 11 manna boltanum og tapaði nokkuð óvænt fyrir KA á Sauðárkróki 1-0. Eftir tapið situr liðið í 3. sæti en er skammt á eftir efstu liðum. Neistastelpurnar voru sem endranær áberandi í leiknum og Fanney Birta kannski full áberandi með því að vera vísað af leikvelli í seinni hálfleik. Óttalega óheppni en það gengur bara betur næst.
Staðan:
hþ : 2011-07-08 09:11:17
Fimmtudagskvöldið 7. júlí spilaði 6. flokkur sinn fyrsta leik í sumar og það gegn Smára í Varmahlíð. Leikurinn var þrælskemmtilegur og hnífjafn og endaði með 3-3 jafntefli. Smárakrakkar byrjuðu betur og komust í 1-0 og staðan 3-1 í hálfleik fyrir Smára. Í seinni hálfleik snérist dæmið nokkuð við og sigraði Neisti þann hálfleik með sama mun og niðurstaðan 3-3. Mark ársins og jafnvel allra tíma á Hofsósi var gert í leiknum með ótrúlegu skoti eða vippu beint upp í loftið sem sveif yfir markmann Smára og endaði í markinu.
hþ : 2011-07-05 10:27:22
Æfingar yngri flokka Neista frá 1. júlí
Frjálsar íþróttir: Miðvikudagur kl 18:15. Þjálfari: Bjarnveig Rós Bjarnadóttir
Knattspyrna 6-11 ára: Þriðjudagar og fimmtudagar kl 18:15. Þjálfari: Karen Inga Viggósdóttir
Knattspyrna 12-18 ára: Þriðjudagar og fimmtudagar kl 19:15. Þjálfari: Hjörvar Leósson
hþ : 2011-07-05 10:24:25

hþ : 2011-06-20 13:05:15
Enn á ný var knattspyrnumót um Jónsmessuna og þetta árið Sternamótið en fyrirtækið gaf farnadbikar sem keppt var um í fyrsta skipti. Alls mættu 18 lið til leiks og spiluðu í tveimur deildum, úrvalsdeild og fyrstu deild. 14 lið voru í efri deildinni og fjögur í neðri deildinni. Eitt lið hætti við þátttöku á síðustu stundu. Þessi 18 lið spiluðu alls 38 leiki en einn leikur var flautaður af vegna þess að eitt lið mætti alltof seint til leiks.
hþ : 2011-06-20 12:56:21
Breytingar halda áfram í þjálfaramálum hjá félaginu. Magnús lenti í slæmu slysi og getur ekki sinnt þjálfun. Félagið óskar Magnúsi að sjálfsögðu góðs bata og sendir honum og hans fjölskyldu góðar baráttukveðjur. Hjörvar Leósson á Laufskálum hljóp í skarðið og sér um þjálfun til hausts. Hjörvar er ekki ókunnur starfi félagsins enda spilaði hann til margra ára með liðinu.
hþ : 2011-06-13 23:16:09
Í vikunni fyrir Jónsmessuhátíðina verður mikið um að vera á vellinum á Hofsósi. Alls verða spilaðir fimm leikir í Norðurlandamóti lögreglumanna frá mánudegi til föstudags. Á þriðjudaginn er 3. flokks leikur hjá sameiginlegu 11 manna liði Tindastóls/Neista. Svo verður knattspyrnumótið á Jónsmessuhátíðinni á laugardaginn. Törninni lýkur svo með leik 2. flokks Tindastóls á sunnudaginn.
hþ : 2011-06-07 11:20:45
Fyrsta umferðin hjá 7 manna liðinu var leikin á Hofsósi í gærkvöldi. Þrjú lið mættu til leiks, Neisti/Tindastóll (N/T), Knattspyrnulið Fjallabyggðar (KF) og Hvöt, og spiluðu allir við alla 2x25 mín langa leiki. Eins og undanfarið var veðrið ekkert sérstakt með kulda og sterkum norðan vindi en þó sól.
hþ : 2011-06-07 10:57:32
hþ : 2011-06-06 13:53:32
Íslandsmótið er hafið hjá þeim stelpum sem spila í 11 manna liði Tindastól/Neista en fyrsti leikurinn var við KA stelpur fyrir nokkrum dögum. Endaði leikurinn 0-0 en hann var spilaður á Akureyri. Síðan hefst fyrsta umferðin á Hofsósi hjá 3. flokknum í 7 manna boltanum mánudaginn 6. júní kl 17. Spilað verður við Knattspyrnufélag Fjallbyggðar og Hvöt á Blönduósi. Riðillinn er einungis skipaður þessum þremur liðum sem er ansi lítið.
hþ : 2011-05-10 15:26:13
Skammt er stórra högga á milli í þjálfaramálum hjá félaginu. Karen Inga Viggósdóttir verður þjálfari yngri krakkana í sumar. Karen hefur undanfarið æft og spilað með meistaraflokksliði Tindastóls og þar áður í yngri flokkum Neista. Óskum við henni að sjálfsögðu velfarnaðar í sínum störfum.
hþ : 2011-05-09 09:56:38
Eins og staðan er nú stefnir í að nýir aðilar hugsi um grasvallarsvæðið á Hofsósi. Í vetur sagði Neisti sig frá umsjón með vellinum og treystir sér einfaldlega ekki til að sjá um völlinn fyrir þá fjármuni sem Sveitarfélagið var tilbúið að láta af hendi. Niðurstaðan varð því sú að auglýsa eftir verktaka til að hugsa um slátt á vellinum. Auglýsingin í Sjónhorninu hljóðaði einhvernveginn svona:
hþ : 2011-05-09 09:48:23
Bjarki Már Árnason sem þjálfað hefur samfleytt hjá Neista í um fimm ár hefur látið tímabundið af störfum vegna mikilla anna. Magnús G Jóhannesson frá Brekkukoti hleypur í skarðið næstu þrjá mánuðina eða svo og mun sjá um eldri hópinn Magnús er ekki beint ókunnur starfi félagsins bæði sem leikmaður og þjálfari og óskum við honum velfarnaðar í starfi.
hþ : 2011-05-09 09:41:54
Lið Neista í 3. flokki stelpna spilar tveimur vígstöðvum í sumar, bæði í 7 og 11 manna bolta. Bæði liðin eru í samstarfi við Tindastól og 7 manna boltinn spilaður á Hofsósi en 11 manna boltinn leikinn á Sauðárkróki. Niðurröðun leikja er enn í burðarliðnum og leikdagar ekki enn ákveðnir. Eins og staðan er núna verður Norðurlandsriðill með Hvöt, Neista og KF (Knattspyrnufélag Fjallabyggðar).
HÞ : 2011-04-20 15:47:07
Á laugardaginn 23. apríl kl 14 verður hið næstum því árlega páskabingó Neista í Höfðaborg. Fjöldi sæmilegra vinninga og síðan er málefnið gríðarlega gott.
hþ : 2011-01-24 10:55:30
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar var haldinn á sunnudagskvöldið og meðal verkefna var að skipta með sér verkum. Stjórnin er því þannig skipuð árið 2011:
hþ : 2011-01-24 10:49:09
Á föstudaginn sl var keppt í Íslandsmótinu innanhúss hjá 3. flokki kvenna. Keppnin fór fram á Húsavík og áttu upphaflega fjögur lið að vera í riðlinum. Á endanum mættu aðeins lið Neista og Völsungs en lið Kormáks hafði hætt við þátttöku skömmu fyrir mót. Lið Hvatar var svo veðurteppt á Blönduósi og gat því ekki mætt.
hþ : 2011-01-18 11:15:58
Aðalfundur Neista var á Hlíðarhúsinu 17. janúar. Auk almennra fundarstarfa voru umræður um þjálfaramál, jónsmessuhátíð, samskipti við sveitarfélagið og vallarmál svo eitthvað sé upp talið. Fólk almennt sammála um að starfið sé ágætt en þó þarf að skerpa enn betur á fáeinum málum.
hþ : 2011-01-13 14:06:25
Aðalfundur Neista verður á Hlíðarhúsinu mánudaginn 17. janúar og hefst kl 18 að staðartíma. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
HÞ : 2011-01-05 16:15:31
Þær Fanney Birta Þorgilsdóttir og Sigríður Vafa Björnsdóttir hafa verið valdar til æfinga hjá landsliði kvenna yngri en 17 ára. Fyrstu æfingar fara fram í Boganum á Akureyri miðvikudaginn 12. janúar næstkomandi. Sannarlega glæsilegur árangur hjá stelpunum og virkileg hvatning fyrir þær sem og félagið til að halda áfram á sömu braut. Þess bera að geta að þær stöllur verða 15 ára á þessu ári.
hþ : 2010-12-16 12:27:30
Hin árlega jólaspilavist félagsins verður haldin á Hlíðarhúsinu miðvikudaginn 29. desember næstkomandi og hefst kl 20.
hþ : 2010-12-16 12:25:35
Tveir ungir og gríðarlega efnilegir íþróttamenn verða fulltrúar Neista vegna viðurkenninga Ungmennasambands Skagafjarðar til ungra íþróttamanna í Skagafirði. Fulltrúar Neista eru Þórgnýr Jónsson og Fanney Birta Þorgilsdóttir. Viðurkenningar verða veittar í hófi í Húsi Frítímans 28. desember næstkomandi kl 20.
hþ : 2010-12-16 12:24:02
Eitt lið frá Neista er skráð á Íslandsmótið innanhúss í janúar. Það er kvennaliðið í 3. flokki (15-16 ára) sem hefur staðið sig svo gríðarlega vel á undanförnum arum. Leikið verður að þessu sinni á Húsavík. Eins og staðan er núna verða andstæðingarnir Kormákur Hvammstanga, Hvöt á Blönduósi og Völsungur á Húsavík. Verðugt verkefni fyrir höndum hjá stelpunum.
hþ : 2010-12-16 12:21:26
Í nóvember var uppskeruhátíð Neista haldin í Grunnskólanum. Eins og venja hefur verið voru verðlaun veitt ásamt því sem árið var gert upp á gamansaman hátt. Tókst samkoman á allan hátt hið besta. Eftirtaldir fengu viðurkenningar í hófinu.
HÞ : 2010-09-06 14:23:55
Sundæfingur hjá Neista eru að hefjast í nýju sundlauginni. Fyrsta æfingin verður á miðvikudaginn í næstu viku en þá verða æfingar fyrir krakka á grunnskólaaldri. Á fimmtudögum verða svo æfingar fyrir fullorðna þar sem verður farið yfir öll helstu atriði í sundi fyrir byrjendur. Nú er um að gera að taka fram sundbolina og stinga sér til sunds.
HÞ : 2010-08-24 09:28:16
Í annað sinn á stuttum tíma lék 4. flokks liðið í úrslitakeppni Íslandsmótsins. Nú fór keppnin fram á Víkingsvelli fyrir sunnan og var spilað á laugardegi og sunnudegi. Fyrst var leikið gegn Víkingi Reykjavík en sá leikur tapaðist 5-0 fyrst og fremst vegna frammistöðu dómarans. Annar leikurinn var gegn Magna og nú náðist að hefna og það duglega með öruggum 4-1 sigri. Að lokum var spilað gegn Snæfellsnesi sem er með gríðarlega sterkt lið og tapaðist leikurinn 4-0. Niðurstaðan bronsverðlaun á Íslandsmóti sem er besti árangur Neista til þessa í knattspyrnu. Sannarlega glæsilegur árangur.
HÞ : 2010-08-24 09:22:02
Síðasti leikur 4. flokks liðsins var á dögunum en það var frestaður leikur gegn Völsungi. Yfirburðir Neista voru miklir og endaði leikurinn 7-2. Niðurstaðan varð því 2. sætið í riðlinum á eftir liði Magna. Algjört óþarfa tap í fyrsta leiknum gegn Magna var því ansi dýrt þegar upp var staðið.
HÞ : 2010-07-27 10:43:26
Á sunnudaginn fóru fram tveir leikir hjá 2. flokki og voru þeir spilaðir á Hofsósi. Fylkir og Keflavík komu í heimsókn og var spilaðir þrír leikir í heild. Neistaliðið átti góða spretti en tapaði þó báðum sínum leikjum 5-0. Seinni leikurinn gegn Keflavík var miklu betri og a.m.k. í þrígang fengu Neistastelpur þvílík dauðafæri að annað eins hefur ekkí sést en inn vildi boltinn ekki að þessu sinni.
HÞ : 2010-07-19 09:00:21
Unglingalandsmót UMFÍ verður um Verslunarmannahelgina í Borgarnesi. Stjórn Neista hvetur alla þá sem vettlingi geta valdið að fara þangað og taka þátt í frábæru móti. Keppnisgreinar eru margar svo flestir sem stunda íþróttir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Keppnin er fyrir krakka á aldrinum 11-18 ára (fædd 1992-99). Neisti greiðir helming þátttökugjaldsins fyrir sína keppendur og UMSS greiðir hinn helminginn. Tekið verður við skráningum á skrifstofu UMSS í síma 4535460 eða netfang ums@simnet.is. Skráningu lýkur á föstudaginn 23. júlí.
HÞ : 2010-07-19 08:51:30
Áfram heldur 4. flokkurinn að gera góða hluti. Á dögunum voru það Samherja stúlkur sem lutu í gras 14-1 á Hofsósi. Mikill munur var á liðunum og ber þess að geta að flestir leikmenn Samherja eru mun yngri en Neistastelpurnar. Neisti er í verulega góðum málum en tvö efstu liðin fara í úrslitakeppnina.
HÞ : 2010-07-05 09:40:48
Um helgina skruppu nokkrir mittisnettir leikmenn Neista á Akureyri og tóku þátt í Pollamóti Þórs. Liðið keppti í aldursflokknum 40+ sem heitir Lávarðadeildin. Fjölmörg lið allsstaðar af að landinu tóku þátt eins og undanfarin ár. Heldur var Neistaliðið þunnskipað og mátti ekki fámennara vera. Svo voru líka margir, sem tóku þátt, hálfmeiddir og aumir. Það kann ekki góðri lukku að stýra enda var uppskeran í rýrara lagi, þrjú naum töp í jafnmörgum leikjum. Liðið skoraði þrjú mörk og gerði Oddur tvö þeirra og Baltasar eitt.
HÞ : 2010-07-05 09:31:17
Stelpurnar í 4. flokki halda áfram að blómstra í boltanum. Á dögunum skrapp liðið á Húsavík og tók heimastúlkur í bakaríið en lokatölur urðu 5-1. Guðný Vaka heldur áfram að salla inn mörkum en hún gerði þrjú, Sigríður Vava gerði eitt og Hugrún Pálsdóttir eitt. Sannarlega góður sigur og að sögn heimildarmanns voru Neistastelpurnar svo miklu, miklu betri en lið Völsungs sem er þó víst alveg sæmilegasta lið.
HÞ : 2010-06-29 10:25:15
Kvennaliðið í 2. flokki keppti sína fyrstu leiki í sumar og var spilað á Fylkisvelli á Árbænum. Upphafalega átti að spila 3 leiki en á síðustu stundu hætti lið Víðis í Garði við þátttöku og voru því eingöngu tveir leikir. Fyrri leikurinn var gegn spræku liði heimastúlkna sem unnu mjög tæpan 2-1 sigur. Neista stelpur voru síst lakari í leiknum en hlutirnir lenda ekki alltaf réttu megin eins og menn hafa séð á HM í S Afríku. Bjarnveig skoraði markið. Seinni leikurinn var svo við firnasterkt Keflavíkurlið sem burstaði Fylkir í þeirra innbyrðisviðureign. Nokkuð var erfitt gegn Keflavík sem hafði 4-0 sigur að lokum. Baráttan var þó til mikillar fyrirmyndar í Neistaliðinu.
HÞ : 2010-06-22 11:26:27
Um Jónsmessuhelgina stóð Neisti fyrir hinu árlegu knattspyrnumóti. Í ár mættu 18 lið til leiks sem léku alls 39 leiki á fjórum völlum. Flestir leikirnir voru spennandi og skemmtilegir enda góða skapið aldrei langt undan í bland við mikið keppnisskap og hasar. Í undanúrslit komust lið Elmars sem spiluðu gegn Heljarb og lögðu þá að velli. Í hinum undanúrslitaleiknum áttust við sigurvegarar síðasta árs lið Hilmars gegn Mýrarkoti. Mýrarkot vann leikinn 1-0. Úrslitaleikinn spiluðu því lið Elmars og Mýrarkot og hafði lið Elmars betur og sigraði.
HÞ : 2010-06-22 11:04:50
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní stóð Neisti fyrir göngutúr á Ennishnjúk. Gengið var frá sumarbústað rétt norðan við Nýlendi en þangað mættu 31 og af þeim fóru 28 alla leið. Veðrið var ljómandi gott, hægur andvari af norðri og að mestu bjart um allar jarðir. Örlítið mistur var í vestri svo ekki sást á Vestfjarðarfjöllin sem blasa við ef vel er bjart. Ferðin tók um 4 klukkustundir í heild og var hin besta skemmtun.
HÞ : 2010-06-15 10:14:10
Hið árlega knattspyrnumót um Jónsmessuna verður laugardaginn 19. júní og byrjar kl 11:30. Að þessu sinni verður keppt í A og B deild og geta liðin valið í hvorri deildinni þau spila. Þeir sem eru orðnir nokkuð fótafúnir eða hafa verið það alla tíð er bent á að spreyta sig frekar í B deildinni. Tilkynna þarf þátttöku hjá Kristjáni í síma 692-3059 fyrir kl 24.00 á föstudagskvöld. Þeir sem skrá sig eftir þann tíma geta því miður ekki verið með.
HÞ : 2010-06-15 10:09:28
Sumartímið er komið á fulla ferð. Auður Birgisdóttir sér um alla skipulagningu og hefur búið til fjölbreytta dagskrá sem hentar krökkunum. Jón Þorsteinn hefur séð um knattspyrnuæfingar sem eru innan verkefnisins. Eins hafa nokkrir krakkar úr Vinnuskólanum lagt Sumartíminu lið.
HÞ : 2010-06-15 10:05:44
Neisti stendur fyrir göngutúr á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Gengið verður á Ennishnjúkinn og lagt að stað kl 10 að morgni frá vegi fyrir norðan Nylendi. Fjallið er ekki mjög erfitt uppgöngu en þó er nokkuð bratt upp lausa skriðu síðasta spölinn. Þeir sem ætla að koma með eru því minntir á að vera vel skóaðir. Hætt verður við ferðina ef stefnir í slæmt veður og skyggni.
: 2010-06-15 10:03:58
Ætlunin er að hafa nytjamarkað um Jónsmessuna til styrktar byggingu íþróttahúss á Hofsósi.
Markaðurinn verður staðsettur í Grunnskólanum.
: 2010-06-15 10:02:36
Ákveðið hefur verið að Neisti og nemendafélagið á Hofsósi sjái um veitingasölu um Jónsmessuna. Með þessari fjáröflun er ætlunin að styrkja enn betur barna- og unglingastarf Neista og nemendafélagið fær hluta af innkomunni sem rennur í ferðasjóð.
umft : 2010-06-15 09:57:46
Fyrsti leikur sameiginlegs liðs Neista/Tindastóls í 3. flokki var á Húsavík í gærkvöldi og tapaðist 2-5. Guðný Vaka lék í leiknum og skoraði bæði mörk liðsins en því miður dugði það ekki til. Liðið er samt gríðarlega öflugt þó það hafi mætt ofjörlum sínum í þetta skiptið.
HÞ : 2010-06-15 09:54:17
Stelpurnar í 4. flokki eru svo sannarlega iðnar við kolann. Á dögunum skelltu þær liði Samherja í Eyjafirðinum 16-0 og spiluðu svo sannarlega vel. Þær hafa því skorað 20 mörk í fyrstu tveimur leikjunum í deildinni. Hugrún gerði 6 mörk í leiknum, Guðný Vaka 4, Sigríður Vava 2, Fanney Birta 2, Lilja Dóra 1, Guðlaug 1 og 1 sjálfsmark.
HÞ : 2010-06-04 10:51:32
Fyrsti leikurinn á Hofsósi þetta sumarið var hjá sameiginlegu 4. flokks liði Neista/Tindastóls (N/T). Andstæðingurinn að þessu sinni var Magni Grenivík. Leikurinn var hörkuspennandi og bauð upp á allt það skemmtilega sem boltinn hefur að bjóða.
HÞ : 2010-05-03 12:51:54
Mikið verður um að vera hjá yngri flokkum í sumar. Fyrstu leikaplön eru að verða klár en geta þó enn tekið stórstígum breytingum ef miðað er við undangengin ár. Þau lið sem eru skráð til keppni eru 2. flokkur, 3. flokkur og 4. flokkur kvenna og 6 flokkur stráka sem verður blandað lið. Auk þess eru tvö lið skráð sameiginlega með Tindastóli; í meistarflokki kvenna og 11 manna liði í 3. flokki kvenna. Fyrstu leikur á Hofsósi er settur á 2. júní í 4. flokki kvenna gegn liði Hvatar.
HÞ : 2010-04-16 16:52:24
Sameiginlegt lið Tindastóls/Neista (T/N) hefur verið á fullri ferð í vor og tekið þátt í bæði æfingaleikjum og Lengjubikarnum. Tveir leikir eru búnir í Lengjubikarnum og er liðið efst í sínum riðli. Fyrst vann T/N lið Hattar frá Egilsstöðum 5-0 og núna á dögunum gerði liðið jafntefli við Sindra 1-1. Sannarlega ágætis byrjun hjá liðinu. Ekki hafa margar Neistastelpur spilað með en Karen Inga hefur leikið báða Bikarleikina.
feykir.is : 2010-04-15 14:37:01
Sagt er frá því á feykir.is að Kristján Jóhannesson frá Enni hafi orðið Fitnessmeistari en kappinn hefur víst lagt nótt við nýtan dag í líkamræktarstöðvum sunnan heiða.
HÞ : 2010-03-28 17:20:01
Ársþing UMSS var haldið í Árgarði sl fimmtudag og áttu Neistamenn sína fulltrúa á fundinum. Sigurjón Þórðarson hætti formennsku UMSS og við tók Hrefna Gerður Björnsdóttir. Hjalti Þórðarson kom á ný inn í stjórn UMSS og situr nú þar ásamt Sigmundi Jóhannessyni. Neisti er því með tvo fulltrúa í fimm manna stjórn.
feykir.is : 2010-03-28 17:14:09
Sjá umfjöllun á feykir.is
HÞ : 2010-03-27 16:02:23
Það var sannarlega hátíðisdagur á Hofsósi í dag þegar sundlaugin var vígð. Ekki undir 300-400 manns mættu á sundlaugarbakkann og tóku þátt í dagskránni. Ragnheiður Ragnarsdóttir Ólympíufari tók fyrsta sundsprettinn ásamt nemendum grunnskólans. Flutt voru nokkur ávörp, m.a. Þakkaði Þórdís Friðbjörnsdóttir gefendunum Lilju og Steinunni, Gunnar Jóhannsson blessaði mannvirkið og Salome Sigurmonsdóttir færði þakkir frá Grunnskólanum og gaf Lilju og Steinunni veglega gjöf. Eins færði Kristján Björn Snorrason Sparisjóðsstjóri Lilju og Steinunni mynd af Staðarbjargarvíkinni. Nánar verður sagt frá þessu síðar.
HÞ : 2010-03-07 11:31:04
Alltaf er gaman þegar Neistafólk er að gera góða hluti þó það sé flutt af svæðinu. Um seinustu helgi var Sonja Sif Jóhannsdóttir heiðruð á ársþingi FRÍ (Frjálsíþróttasamband Íslands) fyrir góð störf í þágu greinarinnar. Hún fékk þar svokallaða eirorðu sem er ein af viðurkenningum sem FRÍ afhendir starfsömu fólki. Sonja hefur um árabil starfað í Eyjafirðinum og þjálfað þar unga upprennandi afreksmenn. Til hamingju með þetta Sonja.
HÞ : 2010-03-01 11:30:56
Nokkur spenna hefur myndast vegna sundlaugarinnar á Hofsósi og hvort hún opnar fyrir vorið. Ljóst var um áramótin að opnunin myndi dragast nokkuð og jafnvel um einhverja mánuði. Heyrst hefur að gamlir sundgarpar hafi leitað að sundskýlum í hirslum sínum fyrir opnunina. Hvort einhverjir mæti í tískufatnið frá sjöunda og áttunda áratugnum verður svo að koma í ljós. Verður laugin kannski opnuð 1. apríl, hvur veit?
HÞ : 2010-03-01 11:23:01
Neisti lætur ekki deigan síga og hefur skráð fjögur lið til keppni í sumar í 7 manna bolta. Í 2. 3. og 4. flokki kvenna og 6. flokki karla. Auk þess er skráð sameiginlegt lið með Tindastóli í meistaraflokki kvenna eins og var á síðasta ári. Það verður því nóg um að vera hjá yngri flokkunum í sumar.
BMÁ : 2010-02-08 14:29:50
Neistastúllkur tóku þátt í úrslitkeppninni í Futsal sunnudaginn 7.febrúar. Þær voru þar í riðli með Breiðablik, Haukum og KFR (knattspyrnufélag Rangeyinga).
HÞ : 2010-02-03 11:20:01
Á dögunum var haldið Grunnskólamót UMSS í eldri flokki og fór keppnin fram á Sauðárkróki. Krakkar úr Grunnskólanum á Hofsósi stóðu sig með mikilli prýði og helst má nefna:
HÞ : 2010-02-03 09:40:17
Á næsta sunnudag leikur 4. flokks lið Neista í úrslitakeppni Íslandsmótsins og verður spilað í Smáranum Kópavogi. Að þessu sinni verða andstæðingarnir bestu lið landsins í þessum aldursflokki og ekki leiðinlegt að lið Neista sé þar á meðal.
feykir.is : 2010-01-27 11:59:40
Eftirfarandi frétt er á feykir.is
Íbúar á Hofsósi vilja fá íþróttahús við hlið sundlaugarinnar.
Félags- og tómstundanefnd Skagafjarðar hefur falið Frístundastjóra og Íþróttafulltrúa að vinna úr þeim óskum um úrbætur í aðstöðu til íþrótta og tómstund sem hægt er að bregðast við innan fjárhagsáætlunar.
HÞ : 2010-01-25 11:23:54
Um helgina lék 2. flokks liðið á Íslandsmótinu og spilað í Seljaskóla. Hópurinn þurfti að fara suður á laugardaginn og gista fyrir sunnan en leikirnir fóru fram á sunnudagsmorguninn. Almennt má segja að liðið hafi staðið sig vel. Andstæðingarnir voru firnasterkir en máttu samt hafa sig alla við gegn baráttuglöðu Neistaliði. Sagt verður meira frá mótinu seinna.
HÞ : 2010-01-20 14:29:41
Aðalfundur Neista var haldinn á Hlíðarhúsinu mánudagskvöldið 18. janúar sl. Að vanda voru fjölmörg málefni á dagskrá auk hefðbundinna fundarstarfa. Mikill hugur var í fundarmönnum til að gera enn betur á árinu en síðustu ár. Fagnað var sérstaklega glæsilegum árangri yngri flokka félagsins sem hafa farið mikinn á mótum upp á síðkastið. Auk þess var rætt m.a. um frjálsar og möguleika á samstarfi við Tindastól, þjálfaramál og sundæfingar. Allir sammála því að stefna að sundæfingum á vegum félagsins um leið og sundlaugin verður tekin í gagnið.
HÞ : 2010-01-18 09:31:16
Um helgina var spilað í riðlakeppni Íslandsmótsins á Sauðárkróki. Ekki þarf að orðlengja það neitt frekar en kvennaliðið stóð sig frábærlega og áttu lið Kormáks og Tindastóls ekki smugu í baráttuglatt Neistalið. Eins keppti 4. flokkur karla sem einning stóð sig vel í mikilli baráttu. Nánar verður sagt frá mótunum seinna.
HÞ : 2010-01-12 13:07:15
Aðalfundur Neista fyrir árið 2009 verður haldinn á Hlíðarhúsinu mánudaginn 18. janúar næstkomandi kl 20. Fundarefni verða venjuleg aðalfundarstörf.
HÞ : 2009-12-30 16:09:40
Hin árlega spilavist Neista var haldin í gærkvöldi (29. desember) og tókst með miklum ágætum. Spilað var á 18 borðum, 16 á efri hæðinni og tveimur á þeirri neðri. Á eftir spilavist gátu gestir keppst við að ná í nokkra óskilapakka frá jólunum og fengu allir pakkarnir nýja eigendur. Ekki sveik svo jólakaffið og kræsingarnar frekar en endranær á skemmtunum á Hlíðarhúsi.
HÞ : 2009-12-30 16:05:28
Mánudaginn 28. desember sl var mikið hóf í Húsi frítímans á Sauðárkróki þar sem lýst var kjöri íþróttamanns Skagafjarðar. Bjarni Jónasson hinn knái hestamaður á Sauðárkróki varð fyrir valinu að þessu sinni. Auk kjörsins var ungum og efnilegum íþróttamönnum í héraðinu veittar viðurkenningar og var Sjöfn Finnsdóttir fulltrúi Neista. Sjöfn var einn af lykilmönnum í kvennaliðunum í sumar og kjörin leikmaður ársins hjá Neista.
HÞ : 2009-12-21 12:14:32
Í vetur keppa þrír yngri flokkar Neista á Íslandsmótinu, 3. og 4. flokkur kvenna og 4. flokkur karla. Ekki er búið að ákveða alla leikdaga en 3. flokkur kvenna keppir á Blönduósi fimmtudaginn 14. janúar og 4. flokkur kvenna laugardaginn 16. janúar á Sauðárkróki. Ekki er búið að ákveða leikdag hjá 4. flokki karla.
HÞ : 2009-11-24 13:01:59
Föstudagskvöldið 20. nóvember síðastliðinn var haldin uppskeruhátíð Neista fyrir árið 2009. Hátíðin var með nokkuð svipuðu sniði og allra síðustu ár þar sem árið var gert upp á gamansaman og alvarlegan hátt. Flestir ef ekki allir sem mættu skemmtu sér hið besta.
: 2009-11-09 10:00:07
Blaðamaður Feykis var á ferðinni í Hofsós á dögunum og laumaði inn nokkrum myndum á feykir.is
hþ : 2009-09-15 11:28:11
Á dögunum var haldið Grunnskólamót UMSS hjá 5. og 8. bekk á vellinum á Sauðárkróki. Nokkrir krakkar úr skólanum á Hofsósi mættu til leiks og stóðu sig almennt vel. Bestur var árangurinn í kúluvarpi þar sem þær Sigríður Vava Björnsdóttir og Fanney Birta Þorgilsdóttir unnu tvöfalt og með yfirburðum. Sigríður kastaði kúlunni 8,22m og Fanney 7,97m. Auk þess varð Sigríður í 4. sæti í langstökki með 3,74m.
BMÁ : 2009-08-19 12:07:36
Sunnudaginn 16.ágúst þá spilaði 2.flokkur kvenna tvo leiki í Íslandsmótinu. Báðir leikirnir töpuðust stórt 7-0 fyrir ÍR og 6-1 fyrir Álftanesi. En úrslit leiksins segja ekki alla söguna, ætla ég því að reyna að segja ykkur söguna.
BMÁ : 2009-08-19 12:03:17
Lokaleikurinn hjá Neista í 3.flokki kvenna var leikinn á Húsavík gegn Völsungi. Leikurinn fór fram föstudaginn 14.ágúst í blíðskapar veðri. Neistastúlkur ræddu saman fyrir leikinn og það var mikill hugur í þeim og þær voru ákveðnar í því að enda mótið með stæl.
hþ : 2009-08-18 12:24:06
Sunnudaginn 16. ágúst var seinni hluti Íslandsmótsins hjá 2. flokki kvenna spilaður á Hofsósi. Alls mættu 3 lið til leiks og spilaðir 3 leikir. Lið Neista átti ágæta spretti þó ekki næðu þær að ógna andstæðingum sínum nægjanlega.
hþ : 2009-08-18 11:34:15
Í leiknum gegn KS/Leiftri mætti lið Neista með hálf vængbrotið lið en fjórir leikmenn mættu ekki til leiks sem vegur þungt í fámennum hóp. Leikurinn var því hálgert strögl en úrslitin hefðu samt sem áður mátt vera örlítið betri en 0-7.
hþ : 2009-08-10 10:07:22
Mjög mikilvægur leikur verður á Hofsósi á morgun þegar 3. flokks liðið spilar við efsta liðið í riðlinum KS/Leiftur. Nú verða stelpurnar að taka fram markaskóna og láta markskotin dynja á marki andstæðinganna.
hþ : 2009-08-10 09:06:12
Um helgina var Króksmót á Sauðárkróki með tæplega 1000 keppendum víðsvegar af landinu. Leikið var við góðar aðstæður og veðrið lék við mótsgesti svotil alla helgina. Lið Neista spilaði í 7 flokki (7-8 ára) og átti ágæta leiki á mótinu.
hþ : 2009-08-06 09:24:45
Nokkrir krakkar úr röðum Neista kepptu á Unglingalandsmótinu um helgina. Farið verður yfir það næstu daga hvernig árangur þeirra var en þau kepptu mest í knattspyrnu en einnig í frjálsum. Í frjálsum voru þrír þátttakendur skráðir, þær systur Stella og Lilja Dóra Bjarnadætur og Óskar Stefánsson sem mætti svo ekki til leiks.
umfi : 2009-07-07 14:23:30
Frjálsar íþróttir er frábær félagsskapur, hreyfing, skemmtun og útivera. Ungmennafélag Íslands starfsrækir frjálsíþróttaskóla víðsvegar í sumar fyrir ungmenni 11 til 18 ára. Frjálsíþróttaskólinn er spennandi tækifæri fyrir ungmenni sem vilja reyna sig í fyrsta sinn eða efla sig í frjálsum íþróttum. Veldu þann stað sem hentar þér og taktu þátt í góðum félagskap. Auk íþróttaæfinga verða kvöldvökur, varðeld, gönguferðir og ýmsar óvæntar uppákomur.
hþ : 2009-07-07 12:17:53
Eftir góðan túr á Austurlandið þar sem komu 4 stig í tveimur leikjum hefur staða liðsins batnað töluvert. Nú er liðið aðeins einu stigi á eftir Völsungi og tveimur á eftir KS/Leiftri.
BMÁ : 2009-07-06 17:13:39
Það var ágætis veður á Raufarhöfn laugardaginn 4.júlí, það var þokkalegur vindur á annað markið. Völlurinn var frekar loðinn en það er víst vegna þess að verið er að safna fyrir slátturvél.
BMÁ : 2009-07-06 17:10:34
Höttur og Neisti áttust við á Egilstöðum föstudaginn 3.júlí og nánar tiltekið á Fellavelli, sem er flottur gervigrasvöllur hjá þeim.
BMÁ : 2009-07-05 22:28:07
Það var alskaplega gott veður laugardaginn 27.júní, þegar Neisti mætti UMFL/Austra. Það er óhætt að segja að strax frá upphafi leiksins hafi Neisti tekið völdin á vellinum. Neista stúlkur léku mjög vel og voru studdar vel áfram af fjölmörgum áhorfendum, sem staddir voru á ættarmóti á Hosósi.
hþ : 2009-07-05 19:48:01
Um helgina lék lið Neista á Pollamóti Þórs og sendi þangað lið skipað leikmönnum 40 ára og eldri. Liðið var í baráttu fram á síðustu mínútu um að komast í 16 liða úrslit.
hþ : 2009-07-03 18:24:00
Nú eru búnir 4 leikir hjá 3. flokki kvenna og er uppskeran 4 stig. Það sem vekur athygli er að liðið er búið að fá á sig fæst mörk allra liða í riðlinum enda hefur það ekki farið framhjá neinum að stelpurnar geta spilað vörn. Helst sem vantar uppá er að skora fleiri mörk en það kemur örugglega.
hþ : 2009-06-23 09:05:19
Sameiginlegt lið Tindastóls/Neista í meistarflokki kvenna lék sinn fjórða leik á dögunum og lá fyrir ÍA á Akranesi. Karen Inga spilaði í leiknum í fyrri hálfleik en aðrar Neistastelpur komu ekki við sögu í leiknum.
hþ : 2009-06-21 11:30:51
Knattspyrnumót Neista um Jónsmessuna stækka á hverju ári. Nú voru skráð 18 lið til leiks og spilað á 4 völlum við góðar aðstæður. Í tveimur riðlum voru fjögur lið og fimm í tveimur.
BMÁ : 2009-06-18 13:44:50
Þá var komið að leik númer tvö í Íslandsmótinu og það var gegn KS/Leiftur og leikið var á Siglufirði þriðjudaginn 16.júní. Veðrið var ágætt, örlítið svalt en völlurinn var frekar slakur.
BMÁ : 2009-06-18 13:31:45
Fyrsti leikur Neista á Íslandsmótinu fór fram á Blönduósi miðvikudaginn 10.júní. Leikurinn var gegn Hvöt og það var blíðskapa veður.
hþ : 2009-06-08 12:25:40
Fyrsti leikur Neista á heimavelli þetta árið hefur verið frestað. Leikurinn átti að fara fram í kvöld mánudaginn 8. júní en verður ekki fyrr en undir mánaðarmót júní/júlí. Það er svotil tilgangslaust að setja inn áætlun um leiki eitthvað fram í tímann enda alveg stöðugt verið að breyta leikjaskipulaginu.
hþ : 2009-06-04 12:23:09
Leikjadagskráin hjá liðum Neista er þétt þessa dagana og fyrsti leikurinn á heimavelli verður spilaður á mánudaginn næsta.
hþ : 2009-06-04 12:21:26
Hið sameiginlega lið Tindastóls/Neista í meistarflokki kvenna spilar í dag sinn þriðja leik á Íslandsmótinu á örfáum dögum. Andstæðingurinn að þessu sinni verður FH. Fyrsti leikurinn var í Boganum á Akureyri og tapaðist naumt 4-3. Sólrún Þorgilsdóttir og Karen Inga Viggósdóttir spilaði í seinni hálfleik í leiknum. Annar leikurinn var svo á Sauðárkróki gegn firnasterku liði ÍBV og tapaðist hann 11-0. Sólrún spilaði í seinni hálfleik en náði ekki að bjarga liðinu frá afhroði í leiknum en það gengur bara betur næst.
HÞ : 2009-05-28 08:54:40
Fyrsti leikur hjá 3. flokki kvenna sem átti að vera í dag, 28. maí, hefur verið frestað um óákveðin tíma vegna smá vandræðagangs hjá Hvöt á Blönduósi.
HÞ : 2009-05-27 19:04:47
Í kvöld lék sameiginlegt lið Neista og Tindastóls í 4. flokki kvenna sinn fyrsta leik í sumar. Spilað var gegn öflugu liði KS/Leifturs sem er eitt albesta lið landsins. Leikurinn var lengstum í ágætu jafnvægi en endaði með 4-1 sigri KS/Leifturs. Salome Sigurmonsdóttir og Vafa Árnadóttir voru fulltrúar Neista í leiknum og spiluðu mjög vel. Leikið var á mjög góðum velli á Sauðárkróki.
visir.is : 2009-05-27 09:48:32
Sundlaug Steinunnar og Lilju verður til á Hofsósi.
Ekki verður amalegt að sitja í heitu pottunum eða taka nokkur sundtök í sundlauginni á Hofsósi. Góð mynd er nú komin á mannvirkið sem rís vestan við Staðarbjarg. Áætlað er að sundlaugin verði tekin í notkun í lok þessa árs. „Auðvitað fylgist maður með, ég býr hérna hinum megin við lækinn," segir Lilja Pálmadóttir. Lilja og aðrir íbúar á Hofsósi horfa nú með tilhlökkun í hjarta sínu á byggingu sem er að rísa, hina margumtöluðu og víðfrægu sundlaug sem þær stöllur gáfu. Sökkullinn er risinn og fyrstu myndir gefa ágætis hugmynd um hvers slags upplifun það verður að sitja í heitu pottunum og horfa yfir Skagafjörðinn og til Drangeyjar. Jafnvel geta hugmyndaríkir sundkappar ímyndað sér að þeir séu að þreyta Drangeyjarsund að hætti Grettis þegar þeir svamla um í 25 metra lauginni.
HÞ : 2009-05-26 11:03:50
Sameiginlegt lið Neista og Tindastóls í 4. flokki kvenna hefur leik á Sauðárkróksvelli miðvikudaginn 27. maí kl 17. Leikið verður gegn sameiginlegu liði KS/Leifturs. Vonandi verða einhverjar af okkar stelpum í eldlínunni í leiknum.
HÞ : 2009-05-25 16:29:33
Eins og sagt hefur verið frá þá mun meistaraflokkur kvenna vera með sameiginlegt lið með Tindastóli. Keppnin þar hefst í vikunni með leik í Boganum á Akureyri.

Fyrstu leikir:
HÞ : 2009-05-25 08:31:31
Íslandsmótið er að bresta á og verður fyrsti leikurinn spilaður á Blönduósi fimmtudaginn 28. maí kl 18. Fyrsti heimaleikurinn verður svo 8. júní gengn sameiginlegu liði Langnesinga og Austra Raufarhöfn.
Fyrstu leikir í sumar:
ÞP / HÞ : 2009-05-22 11:05:08
Sumartím verður á Hofsósi í sumar frá 8. júni til 16. júlí. Dagskráin verður fjölbreytt og eitthvað við allra hæfi. Boðið verður m.a. upp á knattspyrnu, frjálsíþróttir, hjólreiðar, gönguferðir, hestaferð, myndlist, kofabyggð og sund svo eitthvað sé nefnt. Dagskrá verður mánudaga og þriðjudaga kl 9:30-12:30 og miðvikudaga og fimmtudaga kl 13:00-16:00. Rúnar Páll Dalmann og Auður Birgisdóttir verða umsjónamenn í sumar.
HÞ : 2009-05-18 15:25:36
Neisti og Tindastóll hafa gert með sér samkomulag um sameiginleg lið í meistaraflokki kvenna og 4. flokki kvenna. Aðalvöllur liðsins verður á Sauðárkróki en til vara verður leikið á Hofsósi svo hugsanlega geta einhverjir leikir lent þar. Hið sameiginlega lið mun bera nafnið Tindastóll/Neisti.
HÞ : 2009-05-13 16:23:26
Leikir sumarsins eru að verða klárir og hjá 2. flokki verður leikið í tveimur törnum. Fyrri umferðin fer fram á ÍR vellinum 27. júní og sú seinni á Hofsósi 15. ágúst.
HÞ : 2009-04-09 15:46:44
Þrátt fyrir að frjálsar íþróttir séu ekki reglulega á dagskrá félagsins þá ná keppendur Neista annars slagið framúrskarandi árangri sem eftir er tekið.
HÞ : 2009-04-09 15:33:04
Hið sívinsæla páskabingó Neista sem verið hefur flest ár laugardaginn fyrir páska verður ekki haldið í ár. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu í ár er nærri hægt að lofa því að fyrir páskana 2010 verður pingó.
HÞ : 2009-03-16 13:46:45
Í síðustu viku keppti Grunnskólinn austan vatna í skólahreysti á Akureyri. Alls kepptu í þessum riðli 11 skólar af Norðurlandi. Árangurinn var alveg sæmilegur og reyndar frábær í sumum greinum t.a.m. hjá strákunum náði Valþór Einarsson 3. sæti í upphýfingum (26) og 5. sæti í dýfum (27). Niðurstaðan varð svo 8. sæti í stigakeppninni og mjög stutt í næstu lið fyrir ofan.
HÞ : 2009-03-09 09:22:47
Ársþing UMSS var haldið í Höfðaborg föstudaginn 6. mars. Á fundinn mættu fulltrúar aðildarfélaga UMSS auk gesta frá UMFÍ og ÍSÍ, alls hátt í 50 manns. Þingið var á margan hátt ágætt og fjölmörg umræðuefni enda stóð þinghald fram yfir miðnætti. Þingið var í umsjá Neista að þessu sinni sem útvegaði húsnæði og glæsilegt kaffihlaðborð sem eftir verður munað.
mbl.is/HÞ : 2009-02-18 11:00:14
Stjórn Ungmennafélags Íslands ákvað á fundi sínum í gær að Unglingalandsmót UMFÍ verði í umsjá UMSS dagana 31. júlí til 2. ágúst.
HÞ : 2009-02-13 13:44:56
Ársþing UMSS verður að þessu sinni í umsjá Neista og verður haldið í Höfðaborg föstudaginn 6. mars og hefst kl 20. Líklegt er að Neisti hafi rétt á að senda sex fulltrúa á þingið.
HÞ : 2009-02-12 09:33:04
Fyrir nokkru fór fram á Sauðárkróki Grunnskólamót UMSS í frjálsum. Krakkar úr Grunnskólanum austan vatna stóðu sig með mikilli prýði og Óskar Þór Stefánsson fór hreinlega hamförum og sigraði tvær greinar með miklum yfirburðum. Árangur hans í langstökki án atrennu var svo 2. stigahæsta afrek mótsins.
HÞ : 2009-02-09 09:14:51
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar skipti hún með sér verkum:
Formaður: Þorgils Pálsson
Varaformaður: Guðrún Þorvaldsdóttir
Ritari: Jón Þorsteinn Reynisson
Gjaldkeri: Hjalti Þórðarson
Meðstjórnandi: Sigurmon Þórðarson
BMÁ : 2009-02-04 07:58:57
Laugardaginn 31.janúar þá tók Neisti þátt í Íslandsmótinu innanhús í knattspyrnu. 3.flokkur kvenna var með Tindastóli, KS/Leiftri, Kormáki og Hvöt í riðli.
HÞ : 2009-02-02 14:24:43
Um helgina voru leikir hjá yngri flokkum á Sauðárkróki. Strákarnir í 4. flokki lentu í kröppum dansi gegn sterkum andstæðingum og náðu ekki að innbyrða sigur þrátt fyrir hetjulega baráttu,
Stelpurnar stóðu sig afburða vel og náðu góðum árangri gegn mjög öflugum móherjum. Alls léku þær fjóra leiki, unnu einn og gerðu þrjú jafntefli. Þær fengu aðeins á sig tvö mörk en vissulega hefðu þær mátt skora meira. Niðurstaðan varð því 3. sæti í riðlinum. Nánar verður fjallað um mótið síðar.
Úrslit
HÞ : 2009-01-24 15:02:51
Undanfarna daga hefur verið stöðugur hringlandi á leikjum yngri flokkana á íslandsmótinu innanhúss. Það hefur orðið þess valdandi að Neisti hefur neyðst til þess að draga tvo flokka úr keppni, 2. flokk kvenna og 4. flokk kvenna. Leikirnir hjá 3. flokki kvenna verða laugardaginn 31. janúar frá kl 12:30 og 4. flokkur stráka á sama stað frá kl 10.
HÞ : 2009-01-21 11:46:03
Mánudagskvöldið 19. janúar var aðalfundur Neista á Hlíðarhúsi. Heldur var fámennt og alveg á mörkum þess að fundarfært væri. Eins og venja er þá voru málefnin fjölmörg og má þar nefna starfið í heild, mögulegt áframhald á fimleikum, möguleiki á að endurvekja fjálsar íþróttir, mögulegar fjallgöngur á vegum félagsins og margt fleira. Þá voru einnig kosningar og þar urðu ekki miklar breytingar. Þorgils Pálsson var kosinn áfram formaður og Sigurmon Þórðarson kom inn í stjórn í staðinn fyrir Ingibjörgu Halldórsdóttur.
HÞ : 2009-01-12 18:20:57
Leikir Neista á Íslandsmótinu í yngri flokkum eru smá saman að skýrast. Ekki er þó enn búið að raða niður leikjum hjá 2. flokki kvenna en það klárast vonandi á næstu dögum. Leikið verður á Sauðárkróki hjá 3. flokki kvenna og 4. flokki karla en 4. flokkur kvenna leikur á Ólafsfirði.

Leikirnir:
: 2009-01-06 17:13:54
Aðalfundur Neista verður haldinn mánudaginn 19. janúar næstkomandi kl 20. Dagskrá; Venjuleg aðalfundarstörf.
HÞ : 2008-12-30 15:22:10
Kjör íþróttamanns Skagafjarðar fyrir árið 2008 var kunngjört í gær. Sá sem hlaut titilinn að þessu sinni var Bjarki Már Árnason sem er eins og flestir vita þjálfari yngri flokka Neista og leikmaður Tindastóls.
: 2008-12-23 17:21:56
Hin árlega spilavist Neista verður haldin á Hlíðarhúsi mánudaginn 29. desember kl 21. Kaffihlaðborð og glæsilegir vinningar eins og venja er.
HÞ : 2008-12-22 16:25:06
Systurnar Sunna og Bjarnveig Bjarnadætur voru á dögunum tilnefndar af stjórn Neista sem fulltrúar félagsins í kjöri á íþróttamanni Skagafjarðar árið 2008. Þær stóðu sig báðar með mestu prýði á árinu bæði í knattspyrnu og frjálsum. Eftirfarandi umsögn var send tilnefningunum til stuðnings.
BMÁ : 2008-11-25 10:57:18
Föstudaginn 21.nóvember þá var haldið lokahófið hjá Neista, lokahófinu var slegið saman við Vinaball hjá Grunnskólanum á Hofsósi. Mæting var mjög góð og voru fjölmargir foreldrar á svæðinu. Veitt voru verðlaun hjá knattspyrnu- og frjálsíþróttadeild Neista.
HÞ : 2008-11-19 19:09:01
Föstudaginn 21. nóvember næstkomandi kl 17 verður hin árlega uppskeruhátíð félagsins haldin í Höfðaborg. Eins og venja er verður árið gert upp á alvarlegan og gamansaman hátt og viðurkenningar veittar.
HÞ : 2008-10-25 09:10:53
Neisti hefur skráð fjögur yngri lið til keppni á íslandsmótið inni í vetur. Kvennaliðin verða þrjú, 2., 3. og 4. flokkur og 4. flokkur stráka. Sannarlega engin deyfð hjá yngri flokkum í vetur. Keppnirnar fara sennilega fram í janúar.
HÞ : 2008-10-25 09:03:17
Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið úthlutun styrkja til aðildarfélaga sinna fyrir árið 2008. Neisti fær 200 þús úr sjóðum KSÍ fyrir að halda úti yngri liðum í keppni á íslandsmóti. Frá KSÍ hafa borist þær fréttir að um stóraukin framlög sé að ræða og þá sérstaklega til barna og unglingastarfs. Ekki er svo í tilfelli Neista sem fékk meira árið 2007.
HÞ : 2008-09-30 13:02:45
Systurnar Sunna Dís og Bjarnveig Rós Bjarnadætur létu nokkuð að sér kveða á árinu í frjálsum íþróttum ásamt því að spila knattspyrnu flesta daga.
Bjarki Már Árnason : 2008-09-15 14:56:38
Loksins, loksins er komin umfjöllun um frammistöðu Neistastúlkna á Landsbankamótinu í sumar.
Bjarki Már Árnason : 2008-09-15 14:51:00
Fyrr í sumar þá spiluðu þrjár Neistastúlkur með KR á Landsbankamótinu á Sauðárkróki. Formaður Neista liggur nú undir feldi og skoðar tilboðið.
HÞ : 2008-09-08 09:11:43
Laugardaginn 6. september sl var Bikarkeppni FRÍ 16 ára og yngri haldin á Sauðárkróksvelli við prýðisgóðar aðstæður. Keppni þessi er stigakeppni milli 8 félaga sem senda hvert um sig einn keppenda í grein. Mótið tókst í alla staði vel og var spennandi eins og venja er þegar stig og sæti skipta meira máli en árangur einstaklinga. Lið UMS var vel mannað og endaði í 5. sæti.
HÞ : 2008-08-25 13:01:20
Um helgina 23.-24. ágúst var Meistaramót Íslands í flokkum 15-22 ára haldið við prýðisgóðar aðstæður á Sauðárkróksvelli. Systurnar Sunna og Bjarnveig Bjarnadætur kepptu á mótinu og stóðu sig með mikilli prýði.
HÞ/umss.is : 2008-08-22 10:11:26
Á dögunum fór fram keppni í Þristinum sem er stigakeppni milli USVH, USAH og UMSS í flokkum 14 ára og yngri. Keppnin færist milli staða og var að þessu sinni haldin á Reykjum í Hrútafirði. Mótið var í alla staði skemmtilegt og hörð baráttu um stigin og endaði lið UMSS í 2. sæti. Neistafélagar létu ekki sitt eftir liggja en þær systur Stella og Lilja Dóra Bjarnadætur kepptu í kúluvarpi og 800 m hlaupi auk þess að vera í 4x100 m boðhlaupssveitinni. Eins og við var að búast stóðu þær sig vel þó ekki næðu þær að vinna sínar greinar.
HÞ : 2008-08-20 10:45:32
Um helgina skrapp 2. flokks liðið í Garðabæinn og spilaði tvo leiki á Íslandsmótinu. Lið Hattar á Egilsstöðum var búið að draga lið sitt úr keppni svo enn minnkaði riðillinn. Leikirinn tveir voru hörkugóður og má segja að leiknir hafi verið þrír góðir hálfleikar.
HÞ : 2008-08-15 08:05:10
Loksins kom sigur hjá 3. flokki í sumar. Leikið var gegn spræku liði KS sem varð að lúta í gras við stórgóðar aðstæður í Hofsósi í gærkvöldi. Neistastelpur eiga heiður skilin fyrir frammistöðuna. Baráttan var til fyrirmyndir og allir í liðinu stóðu sína vakt með prýði, hvort sem var í marki, vörn, miðju eða sókn. Niðurstaðan 1-0 sigur Neistastelpna og skoraði Sólrún Þorgilsdóttir markið. Með þessum leik sýndi líðið að það getur staðið nágrannaliðunum jafnfætis og er þetta vonandi upphafið af góðum árangri í framtíðinni.
HÞ : 2008-08-13 14:39:07
Í gær lék 3. flokkurinn á Blönduósi gegn Hvöt. Leikurinn var jafn og spennandi en endaði þó með 4-1 sigri Hvatarstelpna. Eins og svo oft áður fengu Neistastelpur fjölmörg færi sem þær nýttu ekki þrátt fyrir ágætis tilburði. Eitt færi náðu þær að nýta með góðu marki Guðnýjar Vöku Björnsdóttur en þar við sat. Þrátt fyrir það hörkuleikur og mikil barátta sem er það jákvæða.
HÞ : 2008-08-05 09:23:54
Á öðrum og þriðja degi Unglingalandsmótsins í Þorlákshöfn héldu keppendur Neista áfram keppni. Þær systur á Mannskaðahóli fóru mikinn í frjálsum og kepptu í nokkrum greinum og stóðu sig almennt mjög vel.
HÞ : 2008-08-02 12:35:09
Nokkrir krakkar frá Neista taka nú þátt í Unglingalandsmótinu í Þorlákshöfn og keppa í knattspyrnu og frjálsum íþróttum. Eftirtaldir keppendur verða okkar fulltrúar; Sunna Dís Bjarnadóttir, Stella Dröfn Bjarnadóttir, Sólrún Björg Þorgilsdóttir, Sonja Finnsdóttir, Salome Sigurmonsdóttir, Lilja Dóra Bjarnadóttir, Ingimar Jónsson, Fanney Birta Þorgilsdóttir og Bjarnveig Rós Bjarnadóttir
Á fyrsta degi frjálsra íþrótta kepptu systur þrjár frá Mannskaðahóli, þær Stella, Lilja Dóra og Bjarnveig.
HÞ : 2008-08-02 11:21:39
Afmælishátíð Neista um síðustu helgi tókst með ágætum enda margt skemmtilegt á dagskránni í rjómablíðu. Má nefna knattspyrnukeppni yngri og eldri leikmanna Neista en þar mættu til leiks fólk á öllum aldri sem vildu endilega taka þátt og spila. Leikmönnum var raðað niður til að liðin væru sem jöfnust. Tókst það mjög vel og voru flestir leikir fyrir vikið jafnir og spennandi. Margt fleira var á dagskránni um daginn sem endaði svo með stórdansleik í Höfðaborg með hljómsveitinni Bermuda.
HÞ : 2008-08-02 10:35:11
Enn á ný tók 3. flokks liðið þátt í fimm marka leik, í 0-5 tapleik á Siglufirði. Liðið hefur spilaði fjóra leiki og í þeim öllum hafa verið skoruð fimm mörk, skrýtin tilviljun það. Leikurinn var ágætur af hálfu Neistastelpna en eins og svo margoft áður vantaði að koma boltanum í netið. Nokkuð vantaði í liðið m.a. þær sem æft hafa og leikið í marki og munar um minna. Tveir leikir eru eftir í sumar og nú er að duga eða drepast og stefnan hlýtur að vera sett á sigur.
HÞ : 2008-07-15 10:27:15
Í gærkvöldi fór fram leikur hjá 3. fl kvenna og var andstæðingurinn að þessu sinni Hvöt á Blönduósi. Veður var heldur kalt, norðan gola og þurrt meðan á leik stóð. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur, Hvatarstelpur allnokkuð öflugri í fyrri hálfleik en í þeim seinni heldur meira jafnræði með liðunum.
HÞ/tindastoll.is : 2008-07-14 10:22:34
Í síðustu viku voru 5 krakkar frá Neista í Frjálsíþróttaskóla UMFÍ á Sauðárkróki, þau Birkir Kristjánsson, Guðný og Vava Björnsdætur og Lilja og Stella Bjarnadætur. Byrjaði skólinn á mánudaginn og lauk um hádegi á föstudeginum. Mikil ánægja var hjá okkar fólki með þetta framtak.
HÞ : 2008-07-12 14:48:04
Á sl fimmtudag lögðu fimm Neistamenn og konur í ferð á Óslandshlíðarfjöll. Tilgangur ferðarinnar var að leita að vörðum sem vitað er að hlaðnar voru af félagsmönnum Geisla á síðustu öld. Sagnir eru um a.m.k. tvær vörður úr ferðum sem farnar voru 1915 og 1943. Í aðra vörðuna á að hafa verið lögð flaska og í hana ritað á blað nöfn allra sem voru í ferðinni.
HK / HÞ : 2008-07-09 15:59:45
Verkefnið Sumartím hefur verið starfrækt á Hofsósi í sumar. Hér er um að ræða samstarfsverkefni Neista og sveitarfélagsins um afþreyingu fyrir krakka 5-12 ára. Stjórnandi af hálfu Neista er Harpa Kristinsdóttir sem hefur haldið utan um verkefnið. Sumartímið byrjaði 9. júní sl og er frá kl 13-16 alla virka daga og alls hafa 15-18 krakkar tekið þátt.
HÞ : 2008-07-07 17:46:04
Um helgina var keppt í Bikarkeppni FRÍ í 1. deild. Lið UMSS var ekki til stórræðana á þessu móti og féll um deild þrátt fyrir ágæta spretti inn á milli. Meiðsli lykilfólks setti strik í reikninginn og í nokkrum greinum voru engir keppendur frá UMSS. Bjarnveig Rós Bjarnadóttir keppti í tveimur greinum á mótinu og stóð sig vel, stökk 1,45 m í hástökki og hljóp í 1000 m boðhlaupinu.
HÞ : 2008-07-07 13:37:26
Um helgina spilaði lið Neista á Pollamótinu á Akureyri. Þess ber að geta að liðið var skipað leikmönnum 30 ára eldri, síungum í anda og á velli. Þar má nefna Þórhall Ásmundsson, Þorgils Pálsson, Gísla Einarsson, Jóhann Sigmarsson ofl. Eins og svo oft áður vantaði sáralítið uppá í sumum leikjum svo jafnir voru þeir. Niðurstaðan, einn sigur, tvö jafntefli og einhver töp. Meira verður fjallað um mótið síðar.
HÞ/Myndir HK : 2008-07-07 13:27:18
Um síðustu helgi fór 3. flokks lið Neista og keppti á Landsbankamótinu á Sauðárkróki. Ekki þarf að orðlengja það neitt frekar að árangurinn var góður og margir jafnir og spennandi leikir gegn sterkum andstæðingum. Alls léku stelpurnar 8 leiki, tvöföld umferð í fimm liða riðli.
HÞ : 2008-07-02 19:48:37
Leikur númer tvö á Íslandsmótinu hjá 3. flokki kvenna var í kvöld og urðu lokatölur 5-0 sigur KS stelpna. Eftir lýsingu áhorfenda var alveg dæmilaust hve illa gekk fyrir lukkuna að vera Neistamegin í þessum leik. Fullt af færum og hálffærum og boltinn jafnvel örfáa sentimetra frá markinu. En inn vildi boltinn ekki að þessu sinni. KS stelpur voru aftur á móti ljónheppnar og hjálpuðu Neistastelpur þeim meira að segja við markaskorun. Svona fóru leikar að þessu sinni en það gengur bara betur næst.
umfi.is : 2008-07-01 12:50:28
Ungmennafélag Íslands starfrækir frjálsíþróttaskóla vikuna 7.-11. júlí fyrir ungmenni á aldrinum 11 til 18 ára. Skólinn er í samvinnu við Frjálsíþróttasamband Íslands. Þarna er á ferðinni spennandi tækifæri fyrir ungmenni sem vilja reyna í fyrsta sinn eða efla sig í frjálsum íþróttum. Veldu þann stað sem hentar þér og taktu þátt í góðum félagsskap. Auk íþróttaæfinga verða kvöldvökur, varðeldur, gönguferðir og óvæntar uppákomur.
HÞ : 2008-06-25 09:45:07
Á sunnudaginn var leikinn á Hofsósi fyrri helmingur íslandsmótsins hjá 2. flokki kvenna. Þar mættu til leiks Stjarnan úr Garðabæ, Höttur á Egilsstöðum og BÍ frá Ísafirði auk liðs Neista. Okkar stúlkur stóðu sig vel þó þær næðu ekki að innbyrða sigur að þessu sinni. Nánar verður fjallað um leikina síðar.
HÞ : 2008-06-22 11:02:33
Núna um helgina er Jónsmessuhátíðin á Hofsósi í algleymingi. Hátíðin hefur slegið í gegn og er orðin fastur liður í skemmtanalífi á svæðinu. Neisti leggur sitt að mörkum og aðstoðar við hluta dagskrár og lagði fram vallarsvæðið undir smalakeppni hestamanna og knattspyrnukeppnina.
: 2008-06-22 11:00:46
Enn á ný hefur leikjaplani sumarsins verið breytt. Vonandi er þetta endalegt plan.


HÞ : 2008-06-13 09:15:04
Vonandi er komið endanlegt plan með leikjaniðurröðun yngri flokka í sumar. Eldri flokkurinn verður leikinn með þriggja umferða fyrirkomulagi alls 9 leikir á lið og verður fyrsta umferðin leikin á Hofsósi sunnudaginn 22. júní næstkomandi.

HÞ : 2008-06-07 12:07:06
Á dögunum fékk Neisti nýja slátturvél á íþróttasvæðið. Um er að ræða notaða vél sem var á golfvellinum á Ólafsfirði. Vallarstjórinn var í essinu sína þegar hann tók vélina af kerrunni.
BMÁ : 2008-06-04 11:17:17
Það er æfingleikur hjá 3.flokki kvenna á Sauðárkróki kl.20. Þar verður leikið við heimamenn í Tindastóli.
HÞ : 2008-05-20 11:20:56
Neisti verður með tvö lið í flokkum kvenna á íslandsmótinu í sumar. Leikjaniðurröðunin er komin er sett hér með fyrirvara um breytingar. Einhver teikn eru á lofti að KA liðið sé hætt þátttöku og breytist því leikjaplanið eftir því.
BMÁ : 2008-05-20 10:50:59
Neisti Hofsósi heldur firma-og hópakeppni í knattspyrnu laugardaginn 24.maí næstkomandi.
HÞ : 2008-05-09 08:47:48
Boltinn er byrjaður að rúlla á æfingasvæðinu. Fyrstu æfingarnar voru í vikunni bæði hjá yngri flokkum og hjá liði Tindastóls. Tindastóll fær æfingasvæðið lánað í nokkur skipti í vikunni, bæði undir æfingar og leiki. Fyrsti leikurinn var svo 8. maí milli Tindastóls og KS/Leifturs.
HÞ : 2008-05-05 13:34:11
Á laugardaginn 10. maí kl 14 verður fimleikasýning í Höfðaborg. Krakkarnir sem verið hafa í fimleikum í vetur munu sína það sem þau hafa lært undanfarna mánuði. Allir þeir sem áhuga hafa á fjölbreyttu starfi félagsins eru hvattir til að fjölmenna á staðinn og fylgjast með.
HÞ : 2008-04-30 17:53:30
Neisti varð 110 ára 12. febrúar síðastliðinn. Í tilefni af þessum tímamótum verður boðað til samkomu á íþróttavellinum laugardaginn 26. júlí í sumar. Ekki hefur dagskráin verið skipulögð en hún verður vonandi tilbúin innan skamms. Við viljum því minna á þennan viðburð og vonumst til þess að fólk taki daginn frá.
HÞ : 2008-04-29 09:10:26
Eins og fram hefur komið þá seldi Neisti í vikunni húseign sína að Túngötu í Hofsósi.
HÞ : 2008-04-29 08:44:58
Á feiknagóðum borgarafundi í Höfðaborg í vikunni var farið yfir möguleika á fjármögnun íþróttahúss á Hofsósi. Samkvæmt því sem fram kom á fundinum er þá og þegar búið að safna um 10 milljónum með framlögum íbúa og velunnara.
HÞ : 2008-04-28 10:23:01
Síðastliðið sumar voru engar frjálsíþróttaæfingar hjá Neista. Var það í fyrsta skipti sem þær duttu niður síðan fyrir 1990. Þetta er bagalegt fyrir þá krakka sem vilja stunda æfingar og taka þátt í mótum. Fyrir um ári síðan kom upp sú hugmynd að finna einn þjálfara fyrir öll félögin í firðinum. Ekki tókst það en reynt verður aftur í ár og þá til þrautar að fá einhvern til að sinna þessu starfi. Ungmennasamband Skagafjarðar hefur stýrt þessu máli og samþykkt að leggja til nokkurn fjárstuðning til að greiða fyrir þessum möguleika. Í sumar verður stefnan að hafa frjálsíþróttaæfingar a.m.k. einu sinni í viku á Hofsósi.
HÞ : 2008-02-19 10:15:58
Um helgina 16.-17. febrúar var Íslandsmeistaramótið í fjölþrautum innanhúss. Okkar keppandi hún Bjarnveig Rós Bjarnadóttir keppti í flokki 15-16 ára og stóð sig prýðisvel og náði 1928 stigum í sinni fyrstu fimmtarþraut. Þó voru Bjarnveigu nokkuð mislagðar fætur í sinni uppáhaldsgrein 800 metrunum þar sem hún var langt frá sínum besta árangri.
HÞ : 2008-02-19 10:15:12
Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar skipti ný með sér verkum.

Formaður: Þorgils Pálsson
Varaformaður: Jón Þorsteinn Reynisson
Ritari: Guðrún Þorvaldsdóttir
Gjaldkeri: Hjalti Þórðarson
Meðstjórnandi: Ingibjörg Sólveig Halldórsdóttir
HÞ : 2008-02-19 10:13:42
Á Grunnskólamóti UMSS sem haldið var fimmtudaginn 31. janúar stóðu krakkarnir úr Hofsósi sig frábærlega. Í mörgum greinum voru þau að berjast um verðlaun og náðu einnig nokkrum sigrum. Birkir Örn Kristjánsson stóð sig afburða vel og sigraði þrjár greinar og lenti í öðru sæti í einni grein.
HÞ : 2008-02-19 10:12:10
Næsta sumar munu tvö lið leika undir merkjum Neista á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Aftur verða það stelpurnar sem sjá um að halda uppi merkjum félagsins en bæði 2. og 3. flokkur munu keppa í 7 manna liðum. Mikill stígandi hefur verið í þessum hópi allt síðastliðið ár og er ekki vafi að með góðum undirbúningi í vetur og vor verður árangurinn góður. Ekki rætist það í þetta skipti að meistaraflokkur karla snúi til baka næsta sumar eins og vonir bjartsýnustu manna stóðu til.
BMÁ : 2008-02-19 10:12:10
Laugardaginn 26.janúar hélt 5.flokkur kvenna til Siglufjarðar til að keppa í Íslandsmótinu innanhús. Eins og hjá 3.fl.kvk. þá höfðu 7 lið skráð sig til leiks en aðeins 4 mættu. Við vorum í riðli með KS, Þór og Tindastóli.
BMÁ : 2008-01-22 20:34:12
Sunnudaginn 20.janúar tók 3.fl.kvenna hjá Neista þátt í Íslandsmótinu innanhús. Stúlkurnar voru þreyta frumraun sína í innanhúsboltanum. Það voru 7 lið skráð til þátttöku en 2 þeirra drógu sig úr keppni sökum manneklu.
Við mættu spræk á staðinn og sannarlega klár í slaginn. Við vorum í riðli með KS, Tindastóli, Þór Ak. og Hvöt.
HÞ : 2008-01-22 20:24:36
Föstudaginn 18. janúar síðastliðinn var aðalfundur Neista og var hann haldinn í Höfðaborg að þessu sinni. Sárafáir mættu til fundar hvort sem það var vegna skítlegs veðurs eða annarra hluta.
HÞ : 2008-01-21 12:32:03
Keppni 5. flokks kvenna verður næstkomandi laugardag (26. jan) og fara allir leikirnir fram á Siglufirði. Alls leika stelpurnar 4 leiki gegn erfiðum andstæðingum.

Leikjaplanið
10:15 Neisti - Þór
11:00 Neisti - Hvöt
11:45 Neisti - KS
12:15 Neisti - Tindastóll
HÞ : 2008-01-16 14:26:09
Aðalfundur Umf Neista verður haldinn í Höfðaborg Hofsósi föstudaginn 18. janúar kl 20:30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og lagabreytingar.
HÞ : 2008-01-15 12:32:56
Keppni hjá 3. flokki kvenna (Norðurlandsriðill) fer fram á Blönduósi sunnudaginn 20. janúar næstkomandi. Fyrsti leikur hefst kl 11:15 og leiknir verða 6 leikir. Hörku prógramm því framundan hjá stelpunum.

11:15 Neisti - Völsungur
12:15 Neisti - KS
13:00 Neisti - Leiftur
14:30 Neisti -.Hvöt
15:00 Neisti - Þór
15:45 Neisti - Tindastóll
HÞ : 2008-01-03 15:25:31
Ingimar Jónsson var rétt fyrir áramótin valinn í landsliðshópinn í flokki 16 ára og yngri í körfubolta. Ingimar hefur undanfarin ár æft og leikið körfubolta með liði Tindastóls en er að öðru leiti sannur Neistamaður. Ingimar var einn af fjórum Tindastólsstrákum til að vera valinn. Sannarlega til hamingju með þetta Ingimar.
HÞ : 2008-01-03 15:25:31
Bjarnveig Rós Bjarnadóttir var fulltrúi Neista í árlegri athöfn þegar útnefndur var Íþróttamaður Skagafjarðar. Athöfnin fór fram á Kaffi Krók rétt fyrir áramótin og var skipt upp í eldri og yngri flokk. Bjarnveig fékk viðurkenningu í yngri flokki fyrir góðan árangur á árinu og átti það svo sannarlega skilið. Engin fulltrúi var frá Neista í eldri flokk þetta árið.
BMÁ : 2007-12-18 15:38:20
Dagurinn hófst snemma hjá drengjunum í 3.flokki karla, en rútan lagði að stað frá Hofsósi kl.11:00 um morgun sunnudagsins 16.desember. Var það Sigurmon sem ferjaði hópinn örugglega á Sauðárkrók.
Lesið áfram á GSH.is
HÞ : 2007-12-12 12:10:11
Íslandsmótið innanhúss er að rúlla á stað og verða fyrstu leikirnir næsta sunnudag (16. des) í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Strákarnir í 3. flokki ríða á vaðið með fjórum leikjum. Leikið er í Norðurlandsriðli og spiluð einföld umferð.

Tímasetning á leikjum.

12:19 Neisti - Kormákur
13:16 Neisti - Hvöt
14:13 Neisti - KS
14:51 Neisti - Tindastóll
HÞ : 2007-10-24 12:29:03
Neisti slær ekki slöku við þessa dagana og vikurnar. Þó meistaraflokkkur karla hafi ekki spilað sl sumar þá er mikil drift í yngri flokka starfinu og verður það áfram. Búið er að skrá 4 lið til keppni á íslandsmótin innanhúss í vetur. Meistaraflokkur karla verður með lið en í fyrra munaði minnstu að liðið kæmist upp í efstu deild. Þrjú lið í yngri flokkum eru skráð til keppni, 2 lið í 3. flokki (15-16 ára), bæði karla og kvenna og 5. flokkur kvenna (11-12 ára).
HÞ : 2007-09-25 16:57:06
Fimmtudaginn 20.september sl. var haldið Grunnskólamót UMSS í frjálsum utanhúss. Mótið fór fram á Sauðárkróksvelli og voru aðstæður frekar erfiðar, kalt og vindur. Keppni fór fram í tveimur bekkjum, 5. og 8. bekk.

Nokkrir krakkar frá Hofsósskóla mættu og náðu ágætis árangri. Stella Dröfn Bjarnadóttir (5. bekk) sigraði í 400 m hlaup á 1:51,00 mín og lenti í 2. sæti í 60 m hlaupi á 10,84 sek. Birkir Örn Kristjánsson (8. bekk) vann langstökkið með stökki upp á 4,10 m. Hjördís Helga Arnardóttir (8. bekk) náði 4. sæti í langstökki og 4. sæti í 80 m hlaupi á 12,66 sek.
HÞ : 2007-09-21 13:26:25
Nóg var að gera hjá Bjarnveigu Rós Bjarnadóttur á íþróttasviðinu í sumar. Hún spilaði í tveimur aldursflokkum í knattspyrnunni og brá sér líka á frjálsíþróttamót undir haustið. Í bikarkeppni 16 ára og yngri, sem fór fram á Kópavogsvelli 8. september sl, keppti hún í tveimur greinum. Í hástökki bætti hún sinn fyrri árangur og vippaði sér yfir 1,45 m og endaði í 8.-9. sæti. Eins var hún í 1000 m boðhlaupssveitinni sem endaði í 5. sæti.
BMÁ : 2007-09-18 14:11:24
Þá er löngu og ströngu fótbolta tímabili lokið. Það hófst um miðjan september, þar sem að æft var á sparkvellinum. Allt frá upphafi hefur mæting iðkennda verið hreint framúrskarandi og er það grunnurinn að því að þeir bætu sig í fótbolta.
HÞ : 2007-08-06 16:27:46
Nokkrir krakkar frá Neista kepptu á Unglingalandsmóti UMFÍ um helgina sem haldið var á Höfn í Hornafirði. Bjarnveig Rós Bjarnadóttir gerði það ekki endasleppt og náði hreint út sagt frábærum árangri með því vera í 3. sæti í 800 m hlaupi í sínum flokki. Hún rann 800 metrana á afbragðs tíma eða 2:38,49 mín. Einnig náði Bjarnveig góðum árangri í hástökki þar sem hún stökk 1,40 m og endaði í 7. sæti. Lilja Dóra systir Bjarnveigar keppti einnig í hástökki í flokki 11 ára og náði þar 12.sæti og stökk 1,10 m sem er prýðisárangur.

Nánar verður fjallað um ferðina á næstunni
BMÁ : 2007-08-02 07:39:09
Þá var komið að síðasta útileik 4.flokks kvenna á þessu sumri. Það var mánudaginn 23.júlí á Blöndósi á móti Hvöt. Það var skýjað en mjög hlýtt og örlítil gola á annað markið.
BMÁ : 2007-08-02 07:38:27
Þá var loksins komið að leik sem að Neistastúlkur hafa beðið lengi eftir. Það var miðvikudaginn 18.júlí sem að KS/Leiftur kom í heimsókn til okkar. Veður aðstæður voru allar hina bestu, nánast logn og fínt veður. Völlurinn fagur grænn og línurnar nokkuð beinar hjá Sigurmoni.
BMÁ : 2007-06-25 16:20:06
Fimmtudaginn 21.júní þá var komið að því að 3.flokkur lagði land undir fót í annað sinn í sumar. Ferðinni var heitið inn á Akureyri til að leika þar við KA-stúlkur. Veðrið virðist leika við okkur þegar við eigum að spila, en það var sól og blíða eins og við erum farin að reikna með.
BMÁ : 2007-06-25 16:12:18
Þá var það fyrsti útleikurinn hjá 3.flokki kvenna en það var leikur á Ólafsfirði gegn KS/ Leiftur.

Þessi umfjöllun verður óvenju stutt enda fór nánast allt úrskeiðis sem gat. Stelpurnar fundu hvor aðra illa. Náðu upp litlu sem engu spili og misstu því boltann oft á slæmum stöðum og var varnarleikurinn í molum. Í raun gekk ekkert upp hjá Neista þó að stúlkurnar hefðu vissulega verið að reyna. Leikurinn endaði með stórsigri andstæðinganna.
BMÁ : 2007-06-25 15:58:48
Þá var það föstudagurinn 15.júní er Hvöt frá Blöndósi kom í heimsókn á Hofsósvöll. Sem og fyrri daginn var blíðviðri og allt til fyrirmyndar til knattspyrnuiðkunnar.
ÆF : 2007-06-19 13:58:19
Nýjasta tölublað Geisla er komið á netið.
BMÁ : 2007-06-19 13:44:14
Mánudaginn 13.júní var loksins komið að fyrsta heimaleik hjá 3.flokk kvenna, andstæðingurinn Þór frá Akureyri. En stúlkurnar hafa beðið spenntar eftir tækifærinu á leika í Íslandsmótinu. Sem fyrr þá var veðrið alveg til fyrirmyndar, sól og blíða og smá gola til að kæla leikmenn niður.

Allt frá því að stelpurnar mættu í búningsklefan var alveg ljós að þær voru staðráðnar í að standa sig. Andinn í hópnum var virkileg jákvæður og stúlkurnar tilbúnar.
BMÁ : 2007-06-19 13:44:14
Þann 12.júní var fyrsti útleikurinn hjá stúlkunum. Hófst ferðalagið þann dag klukkan eitt um daginn þegar lagt var af stað á Grenivík. Á leiðinni vorum við svo heppin að hafa góðan leiðsögumann með okkur. Sigurmon þekkti hverja einustu þúfu á leiðinni og eru stúlkurnar þeim mun fróðari um svæðið.

Á Grenivík var veðrið einstaklega gott, sól og blíða, auk þess sem að smá gola var á annað markið. Völlurinn var alveg til fyrirmyndar.
: 2007-06-06 13:28:09
Niðurröðun leikja sumarsins hjá 3. og 4. flokk Neista er komin á síðuna undir Leikir.
BMÁ : 2007-06-05 12:25:14
Leikurinn 4.júní var fyrsti leikur 4.fl. kvenna í riðlinum sínum á Íslandsmótinu. Vallaraðstæður voru allar til fyrirmyndar og greinilegt að Sigurmon er að gera góða hluti. Það var ágætis suðaustan vindur á vellinum í gær.
BMÁ : 2007-06-04 12:06:53
Mánudagurinn 4.júní 2007 verður minnisstæður hjá Neista Hofsósi. En þann dag fer fram fyrsti leikur, yngri flokka Neista, í Íslandsmóti frá upphafi. Neisti á að spila við sameinaðlið KS/Leiftur kl.17 á Hofsósvelli. Það verður 4.flokkur kvenna sem spila þennan fyrsta leik. Það verður spilað í 7 manna liðum á hálfan stóran völl.
HÞ : 2007-05-01 21:52:21
Ekki hefur farið framhjá neinum að töluverð hlýindi hafa verið undanfarna daga. Völlurinn hefur notið góðs af því enda orðinn klæðigrænn og ekkert að vanbúnaði að hefja æfingar. Æfingarsvæðið lítur líka vel út og er trúlega með allra besta móti. Tvífættir fiðraðir vinir vallarins gera sitt til að viðhalda ræktun á svæðinu enda nóg af slíkum fénaði um allt þetta vorið.

Myndin var tekin 1. maí
HÞ : 2007-05-01 21:45:23
Á dögunum afgreiddi Byggðarráð erindi umf Hjalta um styrk til byggingar sparkvallar á Hólum. Byggðarráð tók vel í erindi félagsins og samþykkti að veita styrk upp á 3 milljónir auk 2 milljóna sem áætlaðar voru á fjárlögum til frágangs skólalóðar. Þessi afgreiðsla gerir það að verkum að framkvæmdir geta hafist á næstu dögum og sparkvöllurinn síðan tekin í notkun fyrir haustið. Ekki er vafi að þetta verður til að lyfta íþróttastarfinu á Hólum og nágrenni á hærra plan en lítil aðstaða hefur verið til íþróttaiðkunar á svæðinu.
HÞ : 2007-04-24 19:11:24
Á dögunum gekk stjórn Neista frá því við Sigurmon Þórðarson að hann gegni stöðu vallarstjóra í sumar. Sigurmon starfaði sem vallarstjóri síðasta sumar og fórst það verk frábærlega úr hendi. Það er mikill fengur fyrir félagið að geta haldið sama manni í þessu starfi á milli ára. Ekki skemmir það heldur fyrir að Sigurmon er úr Óslandshlíðinni en þar þekkja menn öðrum fremur hvernig á að meðhöndla grasvöxt.
HÞ : 2007-04-24 19:11:24
Í sumar er fyrirhugað að þjálfun í frjálsum íþróttum í Skagafirði verði með nokkuð breyttu sniði frá því sem verið hefur undanfarin ár. Þessi mál voru rædd á fundi í síðustu viku með Frjálsíþróttaráði UMSS þar sem saman komu forkólfar félaga í Skagafirði sem hafa frjálsar í sinni starfsemi. Menn voru sammála um að sama vandamálið væri til staðar hjá öllum félögunum - gríðarlega erfitt væri að finna þjálfara. Samþykkt var á fundinum að leita að þjálfara fyrir sumarið sem geti séð um alla þjálfun fyrir félögin. Frjálsíþróttaráð UMSS tók að sér að finna þjálfarann. Minnir þá fyrirkomulagið að nokkru á þegar héraðsþjálfarar á vegum UMSS störfuðu fyrir um 20 árum síðan. Nú verður þó fyrirkomulagið þannig að ungmennafélögin greiða allan kostnað við þjálfarann. Stefnt er að því að æfingar á Hofsósi verði 1-2 í viku og á Hólum tvær í viku og byrji um mánaðarmótin maí-júní.
BMÁ : 2007-04-24 09:26:37
Það er álit sparkspekinga að nú eru foreldra loksins orðnir klárir fyrir þau átök sem framundan eru. Enda hafa foreldra verið að æfa grimmt til að standa börnum sínum snúning. Vitandi að þessi leikur væri framundan. Þess vegna er alveg kjörið að skella leiknum á. Enda er búist við sól og blíðu á komandi fimmtudaginn 26.apríl.
HÞ : 2007-04-13 15:55:02
Fyrir nokkru hittust stjórnarmenn ungmennafélaganna Neista og Hjalta m.a.til að ræða mögulegt samstarf. Fundurinn var hinn gagnlegasti en helstu niðurstöður hans eru þær að stefna að stórauknu samstarfi félaganna á árinu. Því miður hefur farið frekar lítið fyrir samstarfinu allra síðustu árin en var allmikið fyrir 5-10 árum síðan.
HÞ : 2007-04-13 15:53:49
Nú virðist hylla undir þann möguleika að sundlaug rísi fyrir alvöru á Hofsósi innan skamms. Búið er að taka málið fyrir í Byggðaráði Skagafjarðar en í fundargerð þess frá 3. apríl stendur;

,,Sveitarstjóri kynnti viljayfirlýsingu Lilju Pálmadóttur, Steinunnar Jónsdóttur og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um samstarf í tengslum við þá rausnarlegu ákvörðun Lilju og Steinunnar að færa íbúum Hofsóss og nágrennis að gjöf sundlaugarmannvirki sem reist yrði á Hofsósi.

Byggðarráð staðfestir viljayfirlýsinguna og fagnar þeim hlýhug sem Lilja og Steinunn sýna íbúum Skagafjarðar með gjöfinni.”
HÞ : 2007-04-13 10:57:26
Það hefur ekki farið framhjá neinum, allavega ekki þeim sem vilja fylgjast með, að Leikfélagið á Hofsósi er með leiksýningar þessa dagana. Leikritið heitir Ef væri ég gullfiskur og er léttur gamanleikur með ótal uppákomum og fíflagangi. Neistamenn hafa ekki látið sitt eftir liggja og eru nokkrir úr innsta hring félagsins sem fara með stórar rullur í leikritinu. Harpa, Kristján, Sigmundur og Veiga hafa öll farið á kostum í hlutverkum sínum og jafnvel sýnt sína bestu leiki fram að þessu. Sýningum átti að vera lokið en ákveðið hefur verið að bæta við tveimur sýningum, fimmtudaginn 12. apríl kl. 21 og laugardaginn 14. apríl kl. 21.
BMÁ : 2007-04-13 10:57:26
Mæting hjá krökkunum sem æfa með yngri flokkum Neista hefur verið hreint út sagt frábær, alveg frá því að æfingar hófust. Flestir krakkanna voru með yfir 90% mætingu á þessu tímabili sem er hreint ótrúlegt og vonandi að það haldi áfram þannig.
BMÁ : 2007-03-14 10:17:04
Þá er komið leikjaplan fyrir Íslandsmótið í fótbolta hjá Neista-stúlkunum í 3. og 4..flokki
Ath. þess ber að geta að planið er birt með fyrirvara um breytingar.
HÞ : 2007-03-14 09:46:23
Keppni í Skólahreysti var haldið á Akureryi fimmtudaginn 8. mars síðastliðinn. Þar voru samankomnir skólar af Norðurlandi og var sýnt frá keppninni á Skjá einum í gærkvöldi. Hofsósskóli sendi lið til keppni sem stóð sig hreint út sagt frábærlega. Sunna Dís Bjarnadóttir, Daníel Freyr Jónsson, Bjarnveig Rós Bjarnadóttir og Kristinn Ragnar Óskarsson skipuði lið Hofsóss. Liðið endaði í 7. sæti og með aðeins meiri yfirvegun í síðustu keppninni hefði liðið endað enn ofar.
- Úrslit og myndir má sjá hér.
- Þáttinn sjálfan verður hægt að sjá hér.
BMÁ : 2007-03-09 15:33:06
Í framtíðinni munu fréttir sem tengdar eru Neista og nemendum Grunnskólans Hofsósi, birtast á síðum GSH og Neista. Þetta er gert til að fólkið í bænum geti aðeins fylgst betur með framvindu mála hjá ungu knattspyrnufólki á svæðinu. Birtast mun fréttir af liðnum og komandi viðburðum, ásamt því að reynt verður að setja inn skemmtilegar myndir frá starfinu í vetur.
HÞ : 2007-03-08 08:24:56
Þegar skoðaðir eru topp afrekalistar landsins í frjálsum fyrir árið 2006 þá koma nöfn systranna á Mannskaðahóli þeirra Sunnu og Bjarnveigar nokkrum sinnum fyrir.
HÞ : 2007-02-26 13:44:21
Á ársþingi Ungmennasambands Skagafjarðar sem haldið var í Grunnskólanum á Hólum föstudaginn 23. febrúar sl var Sigmundur Jóhannesson kjörin í stjórn. Sigmundur verður því fulltrúi Neista í stjórn UMSS a.m.k. næstu tvö árin. Ef unnið verður eftir tillögum sem samþykktar hafa verið um skipan stjórnar UMSS í nánustu framtíð þá mun Neisti ætíð eiga þar einn fulltrúa. Af málefnum ársþingsins er það einna markverðast að fulltrúar samþykktu að sótt verði um að halda Unglingalandsmót UMFÍ í Skagafirði árið 2010 á 100 ára afmæli UMSS.
HÞ : 2007-02-26 12:05:50
Grunnskólamót UMSS (eldri flokkur) í frjálsum var haldið í Íþróttahúsi Sauðárkróks 25. janúar síðastliðinn. Krakkar frá Hofsósi stóðu sig með miklum ágætum og vann t.a.m. Óskar Stefánsson langstökk án atrennu með glæsibrag.
HÞ : 2007-02-15 10:13:16
Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar 24. janúar skiptu stjórnarmenn með sér embættum:
Formaður: Þorgils Pálsson
Varaformaður: Sigurmon Þórðarson
Ritari: Guðrún Þorvaldsdóttir
Gjaldkeri: Hjalti Þórðarson
Meðstjórnandi: Ingibjörg Sólveig Halldórsdóttir
HÞ : 2007-02-09 17:08:00
Í sumar verða tvö lið Neista í yngri flokkum með í keppni á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Það eru 3. og 4. flokkur kvenna (13-16 ára) í keppni 7 manna liða. Áhuginn er mikill og allar stelpurnar sem eru á þessum aldri spila knattspyrnu.
Feykir : 2007-02-09 17:05:46
Í Feyki, 24. janúar, er viðtal við Hjalta gjaldkera Neista. Greinin birtist hér orðrétt. Hjalti er titlaður formaður Neista í viðtalinu og er Þorgils formaður lítið sáttur við það.
Hjalti Þórðarson : 2007-02-09 15:04:39
Um nokkurt skeið hefur Neisti átt þessa vefsíðu en ekki nýtt hana að ráði. Stjórn Neista samþykkti á dögunum að breyta því og nota þann fjölmiðil eins og hægt er og skrá inn á síðuna fréttir og viðburði úr starfi félagsins.Vonandi getur það gengið eftir og eru félagsmenn sem aðrir hvattir til að benda á eða senda inn efni til birtingar á vefnum.

Tengiliður til að byrja með verður Hjalti Þórðarson og er hægt að senda efni á hjalti@holar.is.
Hjalti Þórðarson : 2007-02-09 14:10:25
Árið 2006 var á margan hátt minnisstætt í starfi félagsins. Skiptust þar á skin og skúrir en í heildina var starfið ágætt. Íþróttastarfið var með svipuðu sniði og undanfarin ár við knattspyrnuhald eldri og yngri auk frjálsra íþrótta. Á öðrum sviðum bar nokkuð á Neistafólki við uppákomur á svæðinu og stóð félagið fyrir hefðbundnum liðum s.s. páskabingói, uppskeruhátíð og jólaspilavist auk þess að vera þátttakandi með öðrum félögum á svæðinu í Jónsmessuhátíð og 17. júní hátíðarhöldum.
Skagafjörður.com : 2006-11-27 14:43:22
Í gær spilaði Neisti í 2. deild Íslandsmótsins innanhúss en leikið var í Austurbergi í Breiðholti.

Riðillinn var jafn og spennandi og endaði Neisti í 3. sæti og spilar því í sömu deild að ári. Bolungarvík vann riðilinn en KS lenti í neðsta sæti og fellur í 3. deild.
Ægir Finnsson : 2005-04-07 16:23:27
Vegna fyrirspurnar í gestabókinni langar mig að benda gestum á að þessi síða er ekki orðin opinber síða félagsins ennþá. Síðan er á netinu til að sem flestir neistamenn, sem eiga efni sem gæti átt heima hér á síðunni, geti tekið þátt í að koma síðunni upp. - Verið ekki of dugleg við að auglýsa síðuna fyrr en einhver mynd er komin á hana.
Ægir Finnsson : 2005-04-03 13:40:33
Einsog kanski sjá má þá tókst ekki að koma þessari síðu í gang á síðasta ári einsog til stóð, en með því að sem flestir aðstoði núna næstu vikur, þá ætti að hafast að koma upp almennilegri síðu núna í sumar. Því meira efni sem ég kem höndum yfir, því auðveldara verður að koma einhverri mynd á síðuna og kvet ég því alla til að leggja Neista lið við að koma upp glæsilegri síðu fyrir félagið. - Kíkið á "Spjallið" og komið með hugmyndir og efni.
Vilhjálmur Árnason : 2004-05-26 21:41:44
Fyrri leikurinn var á móti GKS frá Siglufriði, og eftir langan og kaldan leik var staðan 0 - 0 að loknum venjulegum leiktíma. Þar sem þetta var bikarleikur varð að grípa til framlenginar án mikillar ánægju leikmanna fyrir utan Þorgils sem tók framlengingunni vel þar sem hann hafði verið fastur á vörubíl austur á fjörðum þangað til um miðjan síðari hálfleik. Undir lok seinnihálfleiks framlengingarinnar kom loks til tíðinda þegar Andir og Gilli fiskuðu í sameiningu vítaspyrnum, en Duskó skoraði svo eina mark leiksins úr spyrnunni. Fagnaði hann svo rosalega að hann hlaut gulaspjaldið fyrir að fara úr leiktreijunni en hann var kominn með annað áður í leiknum. Var þetta því sögulegur leikur fyrir tvent að gera; þetta var í fyrsta sinn sem Neisti vinnur bikarleik og í fyrsta skiptið eftir að nýjar reglur voru teknar upp fyrir fagn að leikmanni sé sýnt gula spjaldið fyrir að fara úr leiktregjunni.
Ægir Finnsson : 2004-05-06 11:11:23
Nú loksins hefur Ungmennafélagið Neisti tekið í notkun vefsíðu þar sem helstu upplýsingar um félagið og starf þess er að finna. Vefsíðan verður reglulega uppfærð og verður vonandi ávallt hægt að nálgast ferskar fréttir af félaginu hér á vefnum. Við hvetjum alla til að leggja leið sína sem oftast inn á síðuna og fylgjast með hvernig félagið er að standa sig, en vefsíða þessi spratt upp eftir að Kristján frá Óslandi sagði að jafn stór klúbbur og Neisti, væri ekki neitt án alvöru vefsíðu.
UMF Neisti 2004 © Allur réttur áskilinn
Hönnun & forritun: Ægir Finnsson