Miðasala

Nýtt fyrirkomulag miðasölu!

 

Haustið 2007 tók stjórn L.S. þá ákvörðun að haga miðasölu eins og önnur leikfélög og leikhús gera. 

ÞVÍ ER EKKI HÆGT AÐ PANTA MIÐA NEMA GEGN GREIÐSLU. 

Ef þig langar á sýningu hjá okkur (og auðvitað langar þig svakalega að mæta:) gerirðu eitt af eftirfarandi:

 

  • Kíkir í Kompuna, Aðalgötu 4 á Sauðárkróki, kaupir þér miða og tekur þá með þér heim.
  • Hringir í 849-9434 og greiðir með kreditkorti í símgreiðslu.  Miðarnir eru þá merktir þér og þú getur nálgast þá í Kompunni á opnunartíma eða þeir bíða þín í anddyri Bifrastar á sýningardegi (húsið opnar hálftíma fyrir sýningu).
  • Mætir í anddyri Bifrastar a.m.k. hálftíma fyrir sýningu og kaupir miða, en átt þá á hættu að uppselt sé á sýninguna. 

Þar sem aðeins 92 sæti eru í salnum og þónokkuð af stórum hópum mætir á sýningar mælum við með því að ná sér í miða í tíma. 

Miðar ekki númeraðir eftir sætum svo það er um að gera að mæta snemma.

 

g&b

Sveitarfélagið Skagafjörður

Bandalag íslenskra leikfélaga

Menningarráð Norðurlands vestra