Skýrsla stjórnar LS leikárið 2009-2010
Leikárinu 2008-2009 lauk á fjölmennum og skemmtilegum aðalfundi 8. júni 2009. Að öllu jöfnu fer LS fólk í sumarfrí eftir aðalfund, en síðasta sumar var aðeins breyting á, því sumarið var frekar annasamt en jafnframt skemmtilegt.
LS tók þátt í Jónsmessuhátíð á Hofsósi sem gekk vel. Jóhanna, Ása María og Fannar sýndu brúðuleikhús um Karíus og baktus tvisvar sinnum og stóðu sig með prýði
Lummudagar voru haldnir hér í Skagafirði í fyrsta skipti í júní og segja má að LS fólk hafi séð um skemmtiatriði þar að mestum hluta. Fyrst mættu nokkrar fígurur frá LS á varðeld á opnunarhátið Lummudagana á föstudagskvöldinu. Á laugardeginum var byrjað á að bjóða upp á andlitsmálningu í Leikborg. Brúðuleikhúsið sem var á Jónsmessunni var svo sýnt tvisvar sinnum. Karnival-ganga var í gegnum bæinn og einnig tók LS þátt í sýningu um hvernig menn flutt ull til bæjarins fyrr á árum. Um kvöldið tók LS svo þátt í kvöldvöku þar sem m.a voru sungin lög úr Ávaxtakörfunni, Frá okkar fyrstu kynnum og Karíus og Baktus spruttu upp úr brúðuleikhúsinu í fullri stærð. Almenn ánægja var með þátttöku LS í Lummudögum.
Síðan tók Roklandsævintýrið við og tók stór hópur LS fólks þátt í upptökum á myndinni. Má segja að LS hópurinn hafi verið við tökur bæði nótt og dag. Yngsti þátttakandinn var aðeins nokkurra mánaða gamal, hann Bjartmar Dagur hennar Sylvíu sem var t.d. aktívur í nætursenum. Við bíðum svo spennt eftir að við sláum í gegn sem kvikmyndastjörnur þegar myndin birtist á hvíta tjaldinu, sem verður vonandi á árinu. Samstarfið við Roklandsfólk gekk að mestu mjög vel og lagði LS fólk á sig mikla vinnu m.a með því að að vera með bakkgírinn svaðalega virkan á Þverárfjallinu. Útbörnuð fílsleg, sveitajússa lagði það á sig að vakna fyrir allar aldir til að skunda í KS Varmahlíð eftir hamborgara tilboði; menn og konur voru blaut og köld eftir Grettislaug og sjósund; nætursenur teknar upp aftur og aftur - já það skipti víst máli hvort Ólafur Darri var með tagl eða ekki tagl! Einnig fóru vetrartökur fram í miklu frosti þar sem fullorðna fólkinu var frekar kalt en börnin glöddust yfir að fá stjörnublys aftur og aftur og fleiri flugeldasýngar. En þetta var lærdómsríkur tími og þetta er allt gott og skemmtilegt í minningunni.
Þröstur Guðbjartsson eða Dösti okkar kom svo og leikstýrði hjá okkur í haust barnaleikritinu Rúa og Stúa eftir Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson. Leikritið var sýnt 10 sinnum í Bifröst en áhorfendur hefðu mátt vera fleiri, voru aðeins 462. Á þessum tíma gekk yfir mikil flensa og hálfgerður svínaflensuhræðslufaraldur sem sjálfsagt hefur dregið úr aðsókninni. Æfingatímabilið og sýningar gengu hins vegar hið besta og vert er að þakka öllum þeim sem komu að sýningunni.
Svo í byrjun febrúar kom Jón Stefán Kristjánsson til okkar og byrjað var að æfa söngleikinn Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leiktímabilið gekk vel og sýningar sömuleiðis. Húsið var fullt sýningu eftir sýningu og stundum fullt „a la formaður“ en fyrir þá sem ekki vita þýðir það að nokkrum stólum sé bætt við í öllum mögulegum skotum. Sýningar urðu alls 10 og áhorfendur 934. LS og veitingastaðurinn Ólafshús fóru í samstarf með mat og leikhúsmiða sem mæltist vel fyrir og 99 mans nýttu sér það. Stjórn LS þakkar öllum sem komu að sýningunni kærlega fyrir.
Komandi leikár er svo fullt að skemmtilegum verkefnum og vonumst við í stjórn LS til að þátttaka LS fólk verði áfram góð, því án ykkar er þetta alls ekki mögulegt .
Takk fyrir, Sigurlaug Dóra, formaður
Skýrsla stjórnar Leikfélags Sauðárkróks 2008-9
Leikárið byrjaði strax með látum í júní með þátttöku okkar í Jónsmessuhátíðinni á Hofsós. Voru þar á ferð glimrandi glæsilegir leikarar sem settu upp eitt stykki nett brúðuleikhús og voru sýndar tvær sýningar og vakti þetta mikla lukku meðal gesta.
Þá var farið í að leita að barnaleikriti fyrir haustið, ákveðið var að setja upp Pétur Pan. Fengum við Stefán Sturlu Sigurjónsson til að koma og leikstýra okkur alla leið frá Finnlandi. Í byrjun æfingatímabilsins var ákveðið að hópurinn í Pétri Pan og að auki þeir sem léku í Alínu sl. vor myndu skella sér saman í leikhús. Við fengum svakagóðan díl hjá Leikfélagi Akureyrar og skemmtum okkuð hið besta á Óvitunum og fengum útsýnistúr um leikhúsið gamla á eftir, bara brilljant. Það voru 39 manns sem komu að Pétri Pan, þar á meðal þrennir tvíburar, feðgin og mæðgin sem er ansi skemmtilegt að minnast á. Áhorfendur voru 778 sem mættu galvaskir í leikhús hjá okkur til að sjá þessa fallegu sýningu.
Í nóvember hélt Bandalag íslenskra leikfélaga námskeið um hvernig ætti að stjórna leikfélagi, voru fjórir meðlimir leikfélagsins sendir sem komu síðan boðskapnum og upplýsingunum áfram til annarra meðlima stjórnarinnar. Virkilega vel að þessu námskeiði staðið og margt mjög nytsamlegt hægt að læra af því.
Í desember koma alltaf jólin og þeim fylgja jólasveinar sem leikfélagið tók að sjálfsögðu að sér að prýða bæinn með.
Í janúar eftir jólafrí flæddi Leikborg æfingarhúsnæðið okkar næstum út í sjó því það sprakk krani á efri hæðinni. Þegar dyrnar voru opnaðar var hægt að vaða þarna inni. Búningar, leikmyndir, leikmunir og stór partur af okkar dóti var rennandi og þurfti verulegar aðgerðir í það að bjarga sem mestu. Hefur þar með afar mikill tími stjórnarmeðlima farið í að reyna að finna nýtt æfingarhúsnæði og í húsnæðismál yfir höfuð.
Í rokrassgats veðri við upptökur á kvikmyndinni Rokland voru fjölmargir leikfélagsmeðlimir sem tóku þátt í því að forskalast næstum því við tökur. Gaman samt að nefna hversu vel tókst til að virkja gamla leikfélagsmeðlimi sem ekki hafa tekið þátt í leikfélagsstörfum lengi. En tökurnar gengu vel og munu þær verða enn fleiri núna í sumar.
Þá var mál að starta æfingum fyrir Sæluvikustykkið. Við höfðum fengið Jón Ormar Ormsson til að skrifa fyrir okkur leikrit í tilefni af 120 ára afmæli LS (sem var reyndar árið 2008). Kallast sýningin Frá okkar fyrstu kynnum – 120 ár í sögu leikfélags og er þar nokkurnveginn rakin saga leikfélagsins ásamt hlátri, söngvum, ærslum og gráti. Það voru 50 manns sem komu að þessari sýningu og voru áhorfendur 1065, sem nálægt því að vera aðsóknarmet hjá LS. Haldin var síðan sér hátíðarsýning 2. maí þar sem boðsgestum var síðan boðið á kvöldverð og skemmtun eftir sýningu.
Þann 1. maí var haldið út í félagsheimilið Ljósheima til að syngja vel valin lög úr Frá okkar fyrstu kynnum á verkalýðsskemmtun.
Einnig má alls ekki gleyma því að Leikfélag Sauðárkróks gaf einmitt út mjög efnismikið og vel unnið Afmælisrit í tilefni af 120 ára afmælinu sínu, en Héraðsskjalasafn Skagfirðinga sá um samantektina í því. Var nú ákveðið að vera bara rausnarleg (eftir betl undanfarinna áratuga) og gefa eitt eintak af ritinu inn á hvert heimili í Skagafirði.
Ekki munum við eftir fleiru, enda bara bísna ánægð með árangur leikársins.
Skýrsla stjórnar Leikfélags Sauðárkróks 2007-8
Fyrsta verkefni okkar var uppákoma á 17. júní fyrir yngstu krakkana. Komu fram nokkrar fígúrur í skrúðgöngunni.
Fengum við Stefán Sturlu Sigurjónsson til að semja fyrir okkur barnaleikrit með tónlist eftir Valgeir Skagfjörð og kom Stefán í lok ágúst til að byrja æfingar. Leikstýrði Stefán Sturla okkur. Frumfluttum við barnaleikritið Alínu þann 20. október og seldum við einnig bókina Alínu. Sýndum við 11 sýningar og áhorfendur voru 916 . Mikil vinna fór fram við uppsetningu þessarar sýningar, afar mörg börn og unglingar tóku þátt í henni og mikla þolinmæði þurfti til að halda geðheilsunni þessar 8 vikur. Sýningin varð hin fallegasta og megum við vera afar stolt af kvekendinu.
Í desember sagði fyrverandi formaður leikfélagsins af sér og kusum við Sigurveigu Dögg Þormóðsdóttur einróma til að taka við þeirri stöðu og Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir varð þar með gjaldkeri.
Þar sem að það eru 120 ár síðan að Leikfélag Sauðárkróks var fyrst stofnað ákvað stjórnin að halda nú einhvern veginn upp á þessi frábæru tímamót. Réðum við því Jón Ormar Ormsson til að sjóða saman söguýningu sem spannar leikrit þessara 120 ára þar sem áhersla verður lögð á íslensk leikrit og verður frumsýnt þann 16. nóvember 2008 á degi íslenskrar tungu.
Fórum við þá í að lesa handrit til að setja upp í Sæluvikunni og vorum búin að ákveða að setja upp Tvo tvöfalda en komumst að því fyrir einskæra tilviljun að Leikfélag Blönduóss var einmitt að fara að setja það upp. Þannig að ákveðið var að setja upp Viltu finna milljón? eftir Ray Cooney undir leikstjórn Jóns Stefáns Kristjánssonar. Frumsýndum við þann 27. apríl, sýndum 11 sýningar en því miður þá komu ekki nema 766 áhorfendur, en megum við vera afar stolt af þessari sýningu þó áhorfendur hefðu mátt vera fleiri.
Þann 1. maí fóru álfar og tröll úr barnaleikritinu Alínu út í Ljósheima og skemmtu á hátíðarhöldum Verkalýðsfélaganna við mikinn fögnuð gesta.
Þann 2. – 4. maí aðstoðaði Leikfélag Sauðárkóks við skipulagningu Aðalfundar Bandalags íslenskra leikfélaga. Var hann haldinn á Bakkaflöt, fengum við Maríu Grétu Ólafsdóttur til að vera fundarstjóra og stóð hún sig með mikilli prýði. Fengum við Kristján Björn Snorrason til að vera veislustjóra á hátíðarkvöldverðinum og kemst enginn með hælana þar sem hann hafði tærnar. Fengum við einnig Geirmund Valtýsson til að koma sem leynigest um kvöldið og sló það rækilega í gegn. Bandalagsþingið hófst í Bifröst með sýningunni Viltu finna milljón? og vakti það mikla lukku meðal fundargesta. Fengum við síðan afar flotta umsögn um leikritið Alínu frá Þjóðleikhússtjóra.
Eftir þetta stormasama en skemmtilega ár voru allir afar sáttir með framlag leikfélagsins til menningarlífs Skagafjarðar og bíðum við bara spennt eftir því hvað næsta leikár hefur upp á að bjóða.
Skýrsla stjórnar Leikfélags Sauðárkróks 2006 – 7
Stjórn félagsins heldur því glöð og reif inn í sumarið.
Skýrsla stjórnar Leikfélags Sauðárkróks 2005 - 6
Það fyrsta sem ný stjórn gerði var að skipta með sér verkum og varð niðurstaðan sú að Sigurður nokkur Halldórsson varð formaður, ritari Dagbjört Elva Jóhannesdóttir, gjaldkeri Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir, varaformaður Jóhanna Sigurlaug Eiríksdóttir og meðstjórnandi Guðbrandur Jón Guðbrandsson. Í varastjórn voru Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Sigurveig Dögg Þormóðsdóttir og Þorsteinn Tómas Broddason.
Leikfélagsmeðlimir léku trúða á 17. júní skemmtun Sveitarfélagsins Skagafjarðar á Sauðárkróki og hafði stjórnin einnig hönd í bagga með að finna fjallkonuna Söndru Þorsteinsdóttur sem leysti verkefni sitt vel af hendi.
Seinnipartinn í júlí sendi leikfélagið ýmsar fígúrur til að skemmta börnum á Hafnardeginum.
Í september hófst svo vinna við barnaleikritið Jens og risaferskjuna sem Ármann Guðmundsson þýddi og leikgerði handa okkur eftir sögu Roald Dahl. Einnig samdi Ármann alla tónlist sem flutt var í sýningunni. Í tengslum við það fóru 2 stúlkur á búninganámskeið í Reykjavík, enda þurfti óvenju flókna búninga- og leikmunagerð í því leikriti. Taka skal fram að undirbúningur þessarar sýningar gekk með eindæmum illa, svo jafnvel gekk fram af harðasta leikfélagsfólki. En allt endaði vel að lokum, frumsýnt var samkvæmt áætlun degi 29. október, sýningar urðu 9 og áhorfendur voru 532.
Þegar kveikt var á jólatré bæjarins á Kirkjutorgi í desember bauð Landsbankinn nokkrum pöddum úr Jens og risaferskjunni að vera viðstaddar, og vakti það mikla lukku meðal viðstaddra.
Í febrúar barst Leikfélaginu beiðni um að vera með skemmtiatriði á þorrablóti á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki. Var brugðist vel við þeirri bón og fóru 4 leikfélagslimir og sungu nokkur lög úr Síldinni og Þreki og tárum.
Í lok febrúar bauðst stjórn leikfélagsins að taka þátt í verkefni, eða vera verkefni nemanda í tómstunda og félagsmálafræði, nánar tiltekið í kúrsinum útivist. Verkefnið fólst í hópefli og leikjum utandyra og kynningum í einn dag undir stjorn nemandans. Tókst það gríðarlega vel og töldu stjórnarmeðlimir að þetta myndi skila sér í enn betra samstarfi uppfrá því. Einn þáttur verkefnisins var heimsókn og kynning á Leikfélagi Dalvíkur, fengum við frábærar móttökur hjá stjórninni þar og skoðuðum húsakynni þeirra. Vonumst við til að þetta verði til þess að þessi leikfélög verði í nánara samstarfi, en framtíðin verður að leiða í ljós hvort eitthvað verður af því.
Í byrjun apríl tók leikfélagsfólk þátt í barnaskemmtun í lok tómstundaviku sem haldin var á Sauðárkróki. Bauð leikfélagið upp á andlitsmálningu og jarðarber, appelsína og gulrór úr Ávaxtakörfunni og margfætla og maríuhæna úr Jens og risaferskjunni aðstoðuðu börnin í ýmsum leikjum.
Sæluvikuverkefnið árið 2006 var farsinn Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney. Leikstjórinn Þröstur Guðbjartsson mætti þá í veltiltekna Leikborg og gengu æfingar og undirbúningur allur mun betur en í haustverkefninu, sem betur fer. Frumsýnt var á upphafsdegi Sæluviku eins og venjan er og bar hann að þessu sinni upp á 30. apríl. Áætlaðar voru 10 sýningar en vegna góðar aðsóknar var tveimur sýningum bætt við, svo sýningar urðu 12 og áhorfendur samtals 921.
Skýrsla stjórnar Leikfélags Sauðárkróks 2004 – 2005
Leikárið byrjaði á góðu sumarfríi, en um miðjan september hófust æfingar á haustverkefninu sem að þessu sinni var barna- og söngleikritið Ávaxtakarfan eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur. Leikstjóri var Jón Stefán Kristjánsson og tókst honum glæsilega að koma fallegum boðskap leikritsins til skila. Frumsýnt var 31. október og urðu sýningar 10 talsins og var mjög vel sótt. Í lok nóvember fór nokkrir ávextir í Hofsós og sungu þar nokkur lög á uppskeruhátíð Ungmennafélagsins Neista. Rétt fyrir jól voru svo jólasveinar á ferð frá okkur á Kaffi Krók og skemmtu krökkum sem þar voru. Um miðjan febrúar fóru nokkrar leikfélagskonur á þorrablót á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki og leiklásu hluta úr Saumastofunni eftir Kjartan Ragnarsson og skemmti gamla fólkið sér vel. Í byrjun mars hófust svo æfingar á sæluvikuleikriti ársins sem að þessu sinni var Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson. Þar sem reynsla okkar af Jóni Stefáni síðasta haust var svo góð ákváðum við ráða hann til okkar aftur. Frumsýnt var í byrjun sæluviku 24. apríl. Gekk þetta stykki glimrandi vel, urðu sýningar 12 talsins og hafa áhorfendur ekki verið fleiri í fjöldamörg ár. Á sumardaginn fyrsta var opinn dagur í Fjölbrautarskóla norðurlands vestra og tróðum leikfélagið þar upp með söngatriðum úr Þreki og tárum. Á hátíðahöldunum 1. maí voru svo söngatriði bæði úr Ávaxtakörfunni og Þreki og tárum og fengum við þar frábærar móttökur, kaffi og kökur. Í lok maí voru ávextirnir okkar enn á ferð á sumarhátíð í leikskólanum Glaðheimum og sungu nokkur lög.
Mikil gróska hefur verið í leikfélaginu undanfarin ár og skilar það sér greinilega bæði í fleiri áhorfendum og ekki síst í fleiri virkum leikfélagsmeðlimum, en það er einmitt fólkið sem heldur leikfélaginu gangandi. Við leikfélagsfólk getum verið stolt af vinnu vetrarins og vonandi verðum við jafnöflug á næsta leikári.
Skýrsla stjórnar Leikfélags Sauðárkróks 2003 – 2004
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní sýndi leikfélagið leikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson í leikstórn Sigurðar Halldórssonar. Upphaflega var áætlað að sýna tvær sýningar þennan dag, en vegna mikillar aðsóknar var þriðju sýningunni bætt við.
Í byrjun september var tiltektardagur í húsnæði leikfélagsins í Leikborg og verðlaunuðum við okkur með grillveislu um kvöldið.
Í lok september hófust svo æfingar á haustverkefninu sem að þessu sinni var barna- og söngleikritið Galdrakarlinn í Oz. Leikstjóri var Rósa Guðný Þórsdóttir. Frumsýning var í byrjun nóvember og sýndar voru 10 sýningar sem að okkar mati tókust vel en áhorfendur hefðu mátt vera fleiri.
Þegar kveikt var á jólatréi Sauðárkróksbæjar í byrjun desember voru persónur úr Galdrakarlinum í Oz fengnar til að skemmta börnum ásamt jólasveinum. Bæði var sungið við jólatréð og í Landsbankaútibúinu og vöktu þau Tinkarlinn, Fuglahræðan og Putalingarnir mikla lukku.
Rétt fyrir jól höfðum við milligöngu um að jólasveinar kæmu við á Kaffi Krók og svo skemmtilega vildi til að þar var fyrir fullt af börnum sem höfðu gaman af.
Í febrúar var haldin skemmtun fyrir 5-9 ára börn í íþróttahúsinu sem hét Sælustund barnanna. Þangað mættu ýmsar persónur úr leikritum leikfélagsins, m.a. Lína langsokkur, Boris skógarbjörn, vatnabúar og fleiri. Tókst sú skemmtun mjög vel í alla staði og var ekki laust við að persónurnar væru í ögn lélegra líkamlegu formi en börnin og liði eins og strengabrúðum dagana á eftir.
Um miðjan mars hófust æfingar á Sæluvikuleikitinu Síldin kemur og síldin fer eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar, en frumsýnt var síðasta sunnudag í apríl. Loksins tóku Skagfirðingar við sér og mættu svo vel í leikhúsið að bæta þurfti við aukasýningu.
Í heild hefur þetta verið gott leikár og erum við stolt af okkar fólki fyrir dugnaðinn.
Skýrsla stjórnar Leikfélags Sauðárkróks 2002 – 2003
Leikfélag Sauðárkróks hafði frá því í mars síðastliðnum séð um rekstur á félagsheimilinu Bifröst samkvæmt samningi við sveitarfélagið Skagafjörð, en um áramót var þeim samningi sagt upp með fullu samþykki beggja aðila.
Í janúar fengum við upphringingu frá Hávari Sigurjónssyni þar sem hann bauð okkur að frumflytja glænýtt gamanleikrit eftir sig. Það verður nú að viðurkennast að það kom nokkurt hik á okkur í fyrstu, renna bara blint í sjóinn með leikrit sem var ekki einu sinni komið allt niður á blað ennþá! En eftir að hafa lesið fyrrihlutann og fengið að vita framvindu verksins ákváðum við að láta slag standa, kaupa verkið og koma því á fjalirnar. Þar sem Þröstur Guðbjartsson hafði reynst okkur svo ljómandi vel um haustið var ákveðið að hafa samband við hann aftur, og ekki var nú verra að geta sannað fyrir honum að það gengi nú ekki alltaf jafnbrösuglega hjá okkur og við uppsetningu Bláa hnattarins. Og ekki sáum við eftir þessum ákvörðunum, allt gekk eins og í sögu, Þröstur alltaf sami gullmolinn og leikritið þrælskemmtilegt. Í byrjun sæluviku frumsýndum við því leikrit Hávars, Ertu hálf-dán?, og í lok sæluvikunnar sáu félagar úr leikfélaginu um upplestur úr verkum Hannesar Péturssonar skálds á vöku sem Menningarsamtök Norðlendinga MENOR héldu skáldinu til heiðurs.
Þá er það bara búið.
Skýrsla stjórnar Leikfélags Sauðárkróks 2001-2
Á þessu leikári voru settar upp tvær leiksýningar. Í nóvember 2001 var frumsýndur barna- og söngleikurinn Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar og í árlegri Sæluviku í apríl 2002 settum við upp Galdra - Loft eftir Jóhann Sigurjónsson í leikstjórn Stefáns Sturlu Sigurjónssonar. Þótti fólki gaman að takast á við svo ólíkar sýningar á sama leikárinu, sérstaklega þó Galdra - Loft því langt er síðan sett hefur verið upp eitthvað annað en gamanleikur í Sæluviku og mæltist það vel fyrir.
Af öðrum störfum félagsins er það að segja að af einhverjum ástæðum hefur okkur ekki tekist að halda húsnæði félagsins, Leikborg, mjög snyrtilegu undanfarin ár. Mikið hefur verið talað um að það þurfi nú að taka til og henda því sem er ónýtt svo maður viti nú hvað er til og þess háttar (kannast nokkur við svoleiðis umræður?). Við ákváðum því að “starta trendi” eins og maðurinn sagði og halda tiltektarhelgi með tilheyrandi grillveislu á haustin, bæði til að þjappa mannskapnum saman eftir sumarið og náttúrulega til að taka til. Þetta lukkaðist ljómandi vel og bæði hús og mannskapur önduðu léttar.
Félagsheimilinu Bifröst, þar sem við höfum verið með okkar leiksýningar, var í vetur breytt í bíó- og leiksýningahús með hallandi gólfi og föstum sætum og er, þó ég segi sjálf frá, orðið hið laglegasta leikhús. Upp úr því undirrituðu Leikfélag Sauðárkróks og Sveitarfélagið Skagafjörður samning um að leikfélagið tæki að sér rekstur hússins til eins árs með fjárhagslegri ábyrgð sveitarfélagsins. Ýmiskonar byrjunarörðugleikar hafa verið á þessu verkefni, en við erum bjartsýn á að okkur muni farast þetta vel úr hendi þegar upp er staðið og að Skagfirðingar hafi hér fengið gott menningarhús til frambúðar.
Leikárið byrjaði strax með látum í júní með þátttöku okkar í Jónsmessuhátíðinni á Hofsós. Voru þar á ferð glimrandi glæsilegir leikarar sem settu upp eitt stykki nett brúðuleikhús og voru sýndar tvær sýningar og vakti þetta mikla lukku meðal gesta.
Þá var farið í að leita að barnaleikriti fyrir haustið, ákveðið var að setja upp Pétur Pan. Fengum við Stefán Sturlu Sigurjónsson til að koma og leikstýra okkur alla leið frá Finnlandi. Í byrjun æfingatímabilsins var ákveðið að hópurinn í Pétri Pan og að auki þeir sem léku í Alínu sl. vor myndu skella sér saman í leikhús. Við fengum svakagóðan díl hjá Leikfélagi Akureyrar og skemmtum okkuð hið besta á Óvitunum og fengum útsýnistúr um leikhúsið gamla á eftir, bara brilljant. Það voru 39 manns sem komu að Pétri Pan, þar á meðal þrennir tvíburar, feðgin og mæðgin sem er ansi skemmtilegt að minnast á. Áhorfendur voru 778 sem mættu galvaskir í leikhús hjá okkur til að sjá þessa fallegu sýningu.
Í nóvember hélt Bandalag íslenskra leikfélaga námskeið um hvernig ætti að stjórna leikfélagi, voru fjórir meðlimir leikfélagsins sendir sem komu síðan boðskapnum og upplýsingunum áfram til annarra meðlima stjórnarinnar. Virkilega vel að þessu námskeiði staðið og margt mjög nytsamlegt hægt að læra af því.
Í desember koma alltaf jólin og þeim fylgja jólasveinar sem leikfélagið tók að sjálfsögðu að sér að prýða bæinn með.
Í janúar eftir jólafrí flæddi Leikborg æfingarhúsnæðið okkar næstum út í sjó því það sprakk krani á efri hæðinni. Þegar dyrnar voru opnaðar var hægt að vaða þarna inni. Búningar, leikmyndir, leikmunir og stór partur af okkar dóti var rennandi og þurfti verulegar aðgerðir í það að bjarga sem mestu. Hefur þar með afar mikill tími stjórnarmeðlima farið í að reyna að finna nýtt æfingarhúsnæði og í húsnæðismál yfir höfuð.
Í rokrassgats veðri við upptökur á kvikmyndinni Rokland voru fjölmargir leikfélagsmeðlimir sem tóku þátt í því að forskalast næstum því við tökur. Gaman samt að nefna hversu vel tókst til að virkja gamla leikfélagsmeðlimi sem ekki hafa tekið þátt í leikfélagsstörfum lengi. En tökurnar gengu vel og munu þær verða enn fleiri núna í sumar.
Þá var mál að starta æfingum fyrir Sæluvikustykkið. Við höfðum fengið Jón Ormar Ormsson til að skrifa fyrir okkur leikrit í tilefni af 120 ára afmæli LS (sem var reyndar árið 2008). Kallast sýningin Frá okkar fyrstu kynnum – 120 ár í sögu leikfélags og er þar nokkurnveginn rakin saga leikfélagsins ásamt hlátri, söngvum, ærslum og gráti. Það voru 50 manns sem komu að þessari sýningu og voru áhorfendur 1065, sem nálægt því að vera aðsóknarmet hjá LS. Haldin var síðan sér hátíðarsýning 2. maí þar sem boðsgestum var síðan boðið á kvöldverð og skemmtun eftir sýningu.
Þann 1. maí var haldið út í félagsheimilið Ljósheima til að syngja vel valin lög úr Frá okkar fyrstu kynnum á verkalýðsskemmtun.
Einnig má alls ekki gleyma því að Leikfélag Sauðárkróks gaf einmitt út mjög efnismikið og vel unnið Afmælisrit í tilefni af 120 ára afmælinu sínu, en Héraðsskjalasafn Skagfirðinga sá um samantektina í því. Var nú ákveðið að vera bara rausnarleg (eftir betl undanfarinna áratuga) og gefa eitt eintak af ritinu inn á hvert heimili í Skagafirði.
Ekki munum við eftir fleiru, enda bara bísna ánægð með árangur leikársins.
Sveitarfélagið Skagafjörður
Bandalag íslenskra leikfélaga
Menningarráð Norðurlands vestra