Lög Leikfélags Sauðárkróks, samþykkt á aðalfundi 8/6 2009.
1. gr. Heiti félagsins er Leikfélag Sauðárkróks. Heimili þess og varnarþing er á Sauðárkróki.
2. gr. Tilgangur félagsins er að efla íslenska leiklist og vekja áhuga manna á góðri leiklist.
3. gr. Tilgangi sínum hyggst leikfélagið ná með því að:
a) Með leiksýningum á Sauðárkróki
b) Með leikförum út um land.
c) Með hverskyns fræðslu- og kynningarstarfsemi, svo sem í formi fræðslu- og umræðufunda, kvikmyndasýningum og öðru því sem vænlegt verður talið í þessu augnamiði.
4. gr. Félagið er aðili að Bandalagi íslenskra leikfélaga.
1. gr. Inngöngu í félagið geta þeir fengið sem áhuga hafa á starfsemi þess. Umsókn um inngöngu í félagið skal senda stjórn þess skriflega. Stjórn félagsins leggur síðan umsóknina fyrir næsta almennan félagsfund og telst umsækjandi löglegur félagi ef einfaldur meirihluti fundarins samþykkir umsóknina. Börn yngri en 16 ára greiða ekki félagsgjöld, né hafa atkvæðisrétt. Innganga þeirra er háð samþykki foreldra eða forráðamanns.
2. gr. Æski einhver þess að segja sig úr félaginu skal viðkomandi senda stjórn félagsins skriflega ósk þar um. Úrsögn skal miða við lok leikárs.
3. gr. Inngöngugjald er ekkert. Þeir einir sem eru atkvæðisbærir á aðalfundi sem eru skuldlausir við félagið.
4. gr. Félagar skulu ganga fyrir varðandi hlutverk og önnur störf, sem vinna þarf í þágu félagsins.
3. kafli: Stjórn félagsins og nefndir.
1. gr. Stjórn félagsins skipa 5 menn: formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi. Skal stjórn kosin skriflega á aðalfundi. Formaður skal kosinn sérstaklega, en aðrir stjórnarmenn í einu lagi. Þeir skipta síðan með sér verkum. Varastjórn er skipuð 3 mönnum, skal kosin í einu lagi.
2. gr. Stjórn félagsins annast allan rekstur þess og gætir hags þess. Stjórn er jafnframt ábyrg um það að nefndir á vegum félagsins, eða þeir sem kosnir eru í trúnaðarstöður á þess vegum gegni störfum sínum. Stjórnin ræður leikstjóra hverju sinni. Hann ræður hlutverkaskipan og öðru því er að leikstjórn lýtur hverju sinni, þó í samráði við félagsstjórnina. Rísi ágreiningur um störf leikstjóra, sker stjórnin úr honum.
3. gr. Gjaldkeri annast allar fjárreiður á vegum félagsins og skal ætíð til hans leitað varðandi meðferð lausafjár og eigna á vegum félagsins. Aðeins stjórn félagins og aðalfundur geta haft áhrif þar um. Gjaldkera er skylt að gæta fyllstu aðgæslu í meðferð fjármuna félagsins, og fylgjast með því að eigum þess sé ekki spillt eða eytt að óþörfu. Verði hann slíks var skal hann gera stjórn félagsins viðvart og ber henni að sjá um að það sem miður hefur farið verði leiðrétt eftir því sem kostur er.
4. gr. Stjórninni til aðstoðar og samráðs um val leikrita skulu á aðalfundi kosnir tveir menn. Skal stjórnin leggja hugmyndir sínar fyrir þá eða þeir fyrir hana, og geta þeir óskað eftir stjórnarfundi um þetta atriði.
5. gr. Við ákvörðun verkefnavals til leiksýninga skal jafnan, áður en fullnaðarákvörðun er tekin, gerð kostnaðaráætlun um þau verkefni sem helst koma til greina. Ræður síðan einfaldur meirihluti stjórnar og meðráðamanna um endanlegt val. Þess skal jafnan gætt að minnihluti stjórnar og meðráðsmanna geti gert grein fyrir afstöðu sinni í gjörðabók félagsins og sú greinargerð lögð fram á aðalfundi, ef minnihlutinn kann að óska þess.
6. gr. Ef ráðnir eru félagar eða utanfélagsmenn til launaðra starfa á vegum félagsins skal jafnan gerður um þau störf samningur sem skráður skal í gjörðabók félagsins.
7. gr. Á aðalfundi skulu kosnir tveir menn, leikmunavörður og búningavörður. Jafnframt kýs aðalfundur einn mann til að hafa umsjón með húseigu félagsins. Stjórn getur sett þessum aðilum nánari reglugerð og skal hún þá samþykkt á aðalfundi.
8. gr. Á aðalfundi skulu kosnir tveir skoðunarmenn reikninga félagsins. Skulu þeir skoða reikninga félagsins og benda á atriði í rekstri þess er þeir telja að betur megi fara. Þeir skulu kanna lausafjáreigu svo og skuldir ef einhverjar eru og geta, ef óskað er, borið saman skrá leikmuna- og búningavarða, hafi þær verið gerðar.
9. gr. Á aðalfundi skulu kosnir tveir menn, fulltrúar á aðalfund eigendafélags Félagsheimilisins Bifrastar. Ennfremur einn mann í stjórn þess sama félags. Þessir menn skulu hafa nána samvinnu við stjórn félagsins.
10. gr. Félagið heldur gjörðabók. Í hana skal skrá aðalfundi, félagsfundi og stjórnarfundi. Fundargerðirnar skulu skrásettar jafnóðum á viðkomandi fundum og lesnar upp í lok þeirra til samþykktar. Undir fundargerðir aðalfunda og almennra funda rita fundarritari og fundarstjóri, en öll stjórnin undir fundargerðir stjórnarfunda svo og aðrir sem þá fundi kunna að sitja.
11. gr. Stjórn félagsins má skipa í nefndir og störf eftir því sem þurfa þykir hverju sinni.
12. gr. Stjórn Leikfélags Sauðárkróks skal kosin á þann hátt að úr stjórn skulu ganga tveir hverju sinni. Kjörtímabil formanns skal vera tvö ár.
4. kafli: Um starfsár og aðalfund.
1. gr. Starfsár, þ.e. leikár og reikningsár, skal miðast við leikár Bandalags íslenskra leikfélaga.
2. gr. Aðalfund skal halda fyrir 10. júní ár hvert. Félagsfundi er hægt að halda er stjórn félagsins ákveður, eða ¼ hluti félagsmanna óskar þess. Aðalfund félagsins skal boða með minnst viku fyrirvara í auglýsingablaði eða fréttabréfi og almennum auglýsingum. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað.
3. gr. Á aðalfundi leggur stjórnin fram skriflega skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu ári og skal hún vera nákvæm og skýra ýtarlega frá öllu sem gerst hefur á starfsárinu og varðar málefni félagsins. Skýrslunni skal fylgja skrá yfir leikrit sem sýnd hafa verið á strafsárinu og þar getið allra er við þau störfuðu.
4. gr. Störf aðalfundar eru þessi:
a) Inntaka nýrra félaga.
b) Stjórn félagsins leggur fram skýrslu um starf þess á liðnu starfsári.
c) Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins, fyrir sama tímabil.
d) Kosning samkvæmt lögum félagsins í 3. kafla, greinum 1, 4, 7, 8 og 9.
e) Ákvörðun árgjalds.
f) Lagabreytingar.
g) Önnur mál.
5. kafli: Lagabreytingar og annað.
1. gr. Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða. Til lagabreytinga þarf 3/5 hluta greiddra atkvæða. Skriflegar tillögur til lagabreytinga þurfa að hafa borist stjórn eigi síðar en 3 dögum fyrir aðalfund.
2. gr. Aðalfundur getur samþykkt reglugerð fyrir leiðbeinendur við leiksýningar. Skulu utanfélagsmenn er vinna á vegum leikfélagsins hlýta þeirri reglugerð.
3. gr. Þannig voru þessi lög samþykkt á aðalfundi Leikfélags Sauðárkróks þann 8. júní 2009.
Lög Leikfélags Sauðárkróks.
1. gr. Heiti félagsins er Leikfélag Sauðárkróks. Heimili þess og varnarþing er á Sauðárkróki.
2. gr. Tilgangur félagsins er að efla íslenska leiklist og vekja áhuga manna á góðri leiklist.
3. gr. Tilgangi sínum hyggst leikfélagið ná með því að:
a) Með leiksýningum á Sauðárkróki
b) Með leikförum út um land.
c) Með hverskyns fræðslu- og kynningarstarfsemi, svo sem í formi fræðslu- og umræðufunda, kvikmyndasýningum og öðru því sem vænlegt verður talið í þessu augnamiði.
4. gr. Félagið er aðili að Bandalagi íslenskra leikfélaga.
1. gr. Inngöngu í félagið geta þeir fengið sem áhuga hafa á starfsemi þess og lögheimili eiga á Sauðárkróki.
2. gr. Umsókn um inngöngu í félagið skal senda stjórn þess skriflega. Stjórn félagsins leggur síðan umsóknina fyrir næsta almennan félagsfund og telst umsækjandi löglegur félagi ef einfaldur meirihluti fundarins samþykkir umsóknina. Börn yngri en 16 ára greiða ekki félagsgjöld, né hafa atkvæðisrétt. Innganga þeirra er háð samþykki foreldra eða forráðamanns.
3. gr. Æski einhver þess að segja sig úr félaginu skal viðkomandi senda stjórn félagsins skriflega ósk þar um. Úrsögn skal miða við lok leikárs.
4. gr. Inngöngugjald er ekkert. Þeir einir sem eru atkvæðisbærir á aðalfundi sem eru skuldlausir við félagið.
5. gr. Félagar skulu ganga fyrir varðandi hlutverk og önnur störf, sem vinna þarf í þágu félagsins.
3. kafli: Stjórn félagsins og nefndir.
1. gr. Stjórn félagsins skipa 5 menn: formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi. Skal stjórn kosin skriflega á aðalfundi. Formaður skal kosinn sérstaklega, en aðrir stjórnarmenn í einu lagi. Þeir skipta síðan með sér verkum. Varastjórn er skipuð 3 mönnum, skal kosin í einu lagi.
2. gr. Stjórn félagsins annast allan rekstur þess og gætir hags þess. Stjórn er jafnframt ábyrg um það að nefndir á vegum félagsins, eða þeir sem kosnir eru í trúnaðarstöður á þess vegum gegni störfum sínum. Stjórnin ræður leikstjóra hverju sinni. Hann ræður hlutverkaskipan og öðru því er að leikstjórn lýtur hverju sinni, þó í samráði við félagsstjórnina. Rísi ágreiningur um störf leikstjóra, sker stjórnin úr honum.
3. gr. Gjaldkeri annast allar fjárreiður á vegum félagsins og skal ætíð til hans leitað varðandi meðferð lausafjár og eigna á vegum félagsins. Aðeins stjórn félagins og aðalfundur geta haft áhrif þar um. Gjaldkera er skylt að gæta fyllstu aðgæslu í meðferð fjármuna félagsins, og fylgjast með því að eigum þess sé ekki spillt eða eytt að óþörfu. Verði hann slíks var skal hann gera stjórn félagsins viðvart og ber henni að sjá um að það sem miður hefur farið verði leiðrétt eftir því sem kostur er.
4. gr. Stjórninni til aðstoðar og samráðs um val leikrita skulu á aðalfundi kosnir tveir menn og tveir til vara. Skal stjórnin leggja hugmyndir sínar fyrir þá eða þeir fyrir hana, og geta þeir óskað eftir stjórnarfundi um þetta atriði.
5. gr. Við ákvörðun verkefnavals til leiksýninga skal jafnan, áður en fullnaðarákvörðun er tekin, gerð kostnaðaráætlun um þau verkefni sem helst koma til greina. Ræður síðan einfaldur meirihluti stjórnar og meðráðamanna um endanlegt val. Þess skal jafnan gætt að minnihluti stjórnar og meðráðsmanna geti gert grein fyrir afstöðu sinni í gjörðabók félagsins og sú greinargerð lögð fram á aðalfundi, ef minnihlutinn kann að óska þess.
6. gr. Ef ráðnir eru félagar eða utanfélagsmenn til launaðra starfa á vegum félagsins skal jafnan gerður um þau störf samningur sem skráður skal í gjörðabók félagsins.
7. gr. Á aðalfundi skulu kosnir tveir menn, leikmunavörður og búningavörður. Jafnframt kýs aðalfundur einn mann til að hafa umsjón með húseigu félagsins. Stjórn getur sett þessum aðilum nánari reglugerð og skal hún þá samþykkt á aðalfundi.
8. gr. Á aðalfundi skulu kosnir tveir endurskoðendur félagsins. Skulu þeir endurskoða reikninga félagsins og benda á atriði í rekstri þess er þeir telja að betur megi fara. Þeir skulu kanna lausafjáreigu svo og skuldir ef einhverjar eru og geta, ef óskað er, borið saman skrá leikmuna- og búningavarða, hafi þær verið gerðar.
9. gr. Á aðalfundi skulu kosnir tveir menn, fulltrúar á aðalfund eigendafélags Félagsheimilisins Bifrastar. Ennfremur einn mann í stjórn þess sama félags. Þessir menn skulu hafa nána samvinnu við stjórn félagsins.
10. gr. Félagið heldur gjörðabók. Í hana skal skrá aðalfundi, félagsfundi og stjórnarfundi. Fundargerðirnar skulu skrásettar jafnóðum á viðkomandi fundum og lesnar upp í lok þeirra til samþykktar. Undir fundargerðir aðalfunda og almennra funda rita fundarritari og fundarstjóri, en öll stjórnin undir fundargerðir stjórnarfunda svo og aðrir sem þá fundi kunna að sitja.
11. gr. Stjórn félagsins má skipa í nefndir og störf eftir því sem þurfa þykir hverju sinni.
12. gr. Stjórn Leikfélags Sauðárkróks skal kosin á þann hátt að úr stjórn skulu ganga tveir hverju sinni. Kjörtímabil formanns skal vera tvö ár, formaður getur mest setið tvö kjörtímabil samfellt.
4. kafli: Um starfsár og aðalfund.
1. gr. Starfsár, þ.e. leikár og reikningsár, skal miðast við leikár Bandalags íslenskra leikfélaga.
2. gr. Aðalfund skal halda fyrir 10. júní ár hvert. Félagsfundi er hægt að halda er stjórn félagsins ákveður, eða ¼ hluti félagsmanna óskar þess. Aðalfund félagsins skal boða með minnst viku fyrirvara í auglýsingablaði eða fréttabréfi og almennum auglýsingum. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað.
3. gr. Á aðalfundi leggur stjórnin fram skriflega skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu ári og skal hún vera nákvæm og skýra ýtarlega frá öllu sem gerst hefur á starfsárinu og varðar málefni félagsins. Skýrslunni skal fylgja skrá yfir leikrit sem sýnd hafa verið á strafsárinu og þar getið allra er við þau störfuðu.
4. gr. Störf aðalfundar eru þessi:
a) Inntaka nýrra félaga.
b) Stjórn félagsins leggur fram skýrslu um starf þess á liðnu starfsári.
c) Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins, fyrir sama tímabil.
d) Kosning samkvæmt lögum félagsins í 3. kafla, greinum 1, 4, 7, 8 og 9.
e) Ákvörðun árgjalds.
f) Lagabreytingar.
g) Önnur mál.
5. kafli: Lagabreytingar og annað.
1. gr. Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða. Til lagabreytinga þarf 3/5 hluta greiddra atkvæða. Skriflegar tillögur til lagabreytinga þurfa að hafa borist stjórn eigi síðar en 3 dögum fyrir aðalfund.
2. gr. Aðalfundur getur samþykkt reglugerð fyrir leiðbeinendur við leiksýningar. Skulu utanfélagsmenn er vinna á vegum leikfélagsins hlýta þeirri reglugerð.
3. gr. Þannig voru þessi lög samþykkt á aðalfundi Leikfélags Sauðárkróks þann 9. júní 1994.
Ritað upp úr fundagerðarbók 13.03. 2007
Sveitarfélagið Skagafjörður
Bandalag íslenskra leikfélaga
Menningarráð Norðurlands vestra