Sagan

 ENN Í VINNSLU  ......

Í apríl 2009 kemur út afmælisrit Leikfélags Sauðárkróks þar sem stiklað verður á stóru í sögu LS, eða réttara sagt sögu leiklistar á Sauðárkróki, en hún er ögn lengri en saga LS.  Héraðsskjalasafn Skagfirðinga tók ritið saman fyrir LS og er ætlunin að þetta verði 36 síðna rit sem dreift verður á hvert heimili í Skagafirði.  Einnig verður ritið til sölu á sýningum LS í Bifröst og hægt að panta það í síma 849-9434.

Þetta hér fyrir neðan stendur þó enn fyrir sínu:

Saga leikfélagsins:

Leikfélag Sauðárkróks er eitt elsta áhugamannaleikfélag á landinu. Það var stofnað 13. apríl 1888, þrátt fyrir óáran til sjós og lands eins og segir í Skagfirzkum annál. Stofnendur voru 16 talsins og markmið félagsins voru gagn og skemmtun. Félagið stóð fyrir leiksýningum um árabil og þá helst í Sýslufundavikunni. Það lognaðist þó smám saman útaf. Samt var alltaf leikið á Sauðárkróki, Stúkan, Kvenfélagið og fleiri sáu til þess.

 
9. janúar 1941 var Leikfélag Sauðárkróks stofnað á ný í Gúttó. Að þessu sinni voru stofnfélagar 40 talsins. Fyrsta stjórnin var skipuð þeim Eyþóri Stefánssyni, Pétri Hannsesyni og Kristjáni C. Magnússyni.
 
 
Hin síðari ár hefur leikfélagið sett upp tvær sýningar á ári, aðra í Sæluviku (um mánaðamótin apríl/maí) og hina að hausti til. Starfsemin hefur þó síður en svo einskorðast við það. Settar hafa verið upp söngdagskrár, leiknir jólasveinar, lestur fyrir eldri borgara, leikrit eða skemmtiatriði á 17. júní og margt fleira. Viðfangsefnin taka mið af því hvað er að gerast í bæjarlífinu almennt. Til dæmis var alveg óvenju margt á döfinni þegar haldið var upp á afmæli Sauðárkróksbæjar árið 1996-1997.

Sveitarfélagið Skagafjörður

Bandalag íslenskra leikfélaga

Menningarráð Norðurlands vestra