Félagið

Leikfélag Sauðárkróks

Aðalgötu 20 b                                                           

550 Sauðárkrókur

Kt. 420269-5289

Sími 849-9434

Leikfélag Sauðárkróks (LS) er áhugaleikfélag sem var stofnað í núverandi mynd árið 1941.  Allar götur síðan hefur félagið verið iðið við að setja upp leiksýningar og sinna öðru því er að leiklistinni snýr.

Nú á fyrstu árum tuttugustu og fyrstu aldarinnar hefur LS haft geymslur og æfingaaðstöðu á Aðalgötu 20b sem í daglegu tali kallast Leikborg.  Leiksýningar og stærri dagskrár eru settar upp í félagsheimilinu Bifröst  á Sauðárkróki. 

Starfsemi LS síðustu áratugina hefur aðallega falist í uppsetningu barnaleikrits að hausti og fullorðinsleikrits að vori sem hefur þá verið frumsýnt á opnunardegi Sæluviku Skagfirðinga.  Einnig hefur LS tekið að sér mörg smærri verkefni s.s leiklestra, söngdagskrár og skemmtiatriði á 1. maí og 17. júní.

Félagaskrá LS telur um og yfir 50 manns, en virkir félagar hafa undanfarin ár verið á bilinu 10 - 20.  Fjölmargir utanfélagsmenn hafa þó komið að sýningunum, ekki síst börn og unglingar sem hafa tekið þátt í haustverkefnum undanfarinna ára.

LS er aðili að Bandalagi íslenskra leikfélaga (BÍL).  Menntamálaráðuneytið (gegnum BÍL), Sveitarfélagið Skagafjörður og nú nýtilkomið Menningarráð Norðurlands vestra eru langstærstu styrktaraðilar LS, en mikill fjöldi ýmissa fyrirtækja í Skagafirði veitir félaginu ómetanlegan stuðning með kaupum á auglýsingum í leikskrár og á auglýsingaveggspjöld.  Undanfarin ár hafa Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki og Starfsmannafélag Skagafjarðar einnig veitt LS dyggan stuðning með því að bjóða meðlimum sínum á leiksýningar LS.

 

 g&b 2008

 

Sveitarfélagið Skagafjörður

Bandalag íslenskra leikfélaga

Menningarráð Norðurlands vestra