Aftur flæðir í Leikborg

15. mars 2010

Í janúar 2009 gaf sig krani á efri hæð Leikborgar með þeim afleiðingum að vatn flæddi niður í gengum loftið og niður á neðri hæðina og bleytti og skemmdi mikið af búningum og fleiru.
Í dag uppgötvaðist að aftur var farið að leka við vaskinn uppi og hafði lekið niður svo heilmikið af búningum blotnaði. Þar sem svo gömul föt (og ekki kannski alveg hrein fyrir) eru fljót að mygla þarf að hafa hraðar hendur og þvo öll ósköpin áður en þau skemmast frekar.

Þeir sem eru tilbúnir til að þvo nokkar vélar af búningum fyrir LS eru því vinsamlega beðnir að hafa samband við Lullu formann í síma 862-5771

Um höfundinn Ólaf Hauk Símonarson

13. mars 2010

Þegar forvitnast er um leikskáldið Ólaf Hauk rifjast margt skemmtilegt upp sem tengist æskunni. Fyrir utan fjölmargar skáldsögur hefur hann samið mörg skemmtileg leikrit og söngleiki. LS hefur sett upp bæði Þrek og tár (2005) og Köttinn sem fer sínar eigin leiðir (2001) eftir hann, en að auki hafa Hafið, Græna landið, Gauragangur og fleiri verk eftir hann verið sett upp af Leikfélagi Reykjavíkur og Leikfélagi Hafnarfjarðar. Ólafur Haukur kom líka sterkur inn í barnatónlist á áttunda og níunda áratugnum þegar Hattur og Fattur og Eniga meniga skreyttu barnatíma útvarps og sjónvarps.

Ólafur Haukur er fæddur í Reykjavík árið 1947, hann stundaði nám í hönnun, bókmenntum og leikhúsfræðum í Kaupmannahöfn og í Frakklandi á árunum 1965 til 1974. Hann var dagskrárgerðarmaður hjá Ríkissjónvarpinu 1974–76 en frá árinu 1976 hefur hann eingöngu sinnt bókmenntaskrifum og þýðingum.

Búið að skipa í hlutverk - æft stíft

10. mars 2010

Fólkið í blokkinni er nú komið upp úr startholunum og mun verða æft nokkuð stíft fram að páskum.
Eins og áður hefur komið fram er Fólkið í blokkinni söngleikur um ósköp venjulegt fólk í blokk - eða að minnsta kosti bara jafnvenjulegt fólk og við hin erum, hvert okkar hefur jú sín sérkenni og við erum stundum dálítið furðuleg sjálf. Í umræddri blokk er að finna unga og gamla, elskendur og hatendur, fræga og ófræga, íbúa og óboðna gesti.

Tíðinda maður brá sér á æfingu og náði að hitta á eina fjölskyldu; umburðarlyndu móðurina Sollu, Óla litla sem sér heiminn ekki með augum fullorðinna, mislynda og misskilda unglinginn Söru og föðurinn Tryggva, ætli megi ekki segja að hann sé svolítið misskilinn líka.

Fjallað verður lítillega um persónur og leikendur hér á vefnum á næstu dögum og vikum.

NEATA hátíðin á Akureyri í sumar

9. mars 2010

Þá liggur fyrir hvaða sýningar við munum fá að sjá á NEATA-hátíðinni á Akureyri 10.–15. ágúst nk. Framkvæmdanefnd bandalagsins hefur valið þrjár íslenskar sýningar til að vera á hátíðinni. Fleiri sýningar sóttu um þátttöku og er gleðilegt hversu margir sýna þessari hátíð áhuga, bæði hérlendis sem erlendis.
Íslensku sýningarnar eru eftirtaldar (og má eflaust sjá nánar um þær á www.leiklist.is):

Umbúðalaust
Leikfélag Kópavogs
Opnunarsýning

Birtíngur
Leikfélag Selfoss

Vínland
Freyvangsleikhúsið

Þess má svo geta að Danmörk, Finnland, Frakkland, Færeyjar, Litháen, Noregur, Rúmenía og Svíþjóð verða einnig með sýningar á hátíðinni.


Fréttir frá bandalaginu

7. mars 2010

Þessar fréttir komu frá Bandalagi íslenskra leikfélaga í lok febrúar:

Bandalagsskólinn flytur!
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga verður ekki í Svarfaðardalnum næsta sumar. Við erum búin að leita árum saman að stað sem hefur betra aðgengi fyrir fatlaða en kostar ekki mikið meira en Húsabakki og síðasta ráðið var að auglýsa hjá öllum sveitarfélögunum á landinu. Okkur bárust fjölmörg svör en aðeins eitt mætti okkar kröfum að mestu. Það var frá Húnavallaskóla í Húnavatnshreppi. Þið getið skoðað aðstöðuna á vefslóðinni http://www.hotelhunavellir.is/
Í sumar er áformað að halda þrjú námskeið að Húnavöllum dagana 12. til 20. júní; Leikstjórn I, kennari Sigrún Valbergsdóttir, Leiklist I, kennari Ágústa Skúladóttir og framhald af söngnámskeiðinu frá síðasta sumri, Röddin í leikhúsinu, kennari Þórhildur Örvarsdóttir. Skólabæklingurinn verður sendur út eins og venjulega þann 8. mars, 10 eintök til hvers félags (formanns) og hefjast skráningar þann 15. mars. Þeim lýkur 15. apríl að venju.
Það verður spennandi að hefja skólastarfið á nýjum stað þótt eftirsjá sé að Svarvaðardalnum og fólkinu þar sem hefur verið okkur ómetanlegt öll þessi 13 ár.

Sveitarfélagið Skagafjörður

Bandalag íslenskra leikfélaga

Menningarráð Norðurlands vestra