19. október 2011 - 12:26
Árshátíð 4x4

Árshátíð Skagafjarðardeildar 4x4 5 nóvember 2011
Laugardaginn 5 nóvember verður árshátíð Skagafjarðardeildar 4x4 haldin á Mælifelli.
Húsið opnar kl 19:30 og byrjar dagskráin kl 20:00

Matseðillinn er eftirfarandi.

Í forrétt.
Nautacarpaccio með klettasalati og furuhnetum

Aðalréttur verður þríréttaður.
Mexikóskur kjúklingaréttur
Jurtakryddað lambalæri
Skötuselur í piparostasósu

Eftirréttur.
Volg súkkulaðiterta með ís

Á barnum verður hrikalega flott tilboð svo sem kaldur á 500 og happy hour.
Að venju munu landsfrægir skemmtikraftar sjá um að skemmta félagsmönnum.
Eftir að skemmtiatriðum lýkur verður okkur boðið á ball .
Allt þetta fáum við á aðeins 3000 evrur (KR) á mann sem er sama verð og í fyrra.
Nú taka allir fram sitt fínasta púss og dansskóna og mæta á þennan frábæra viðburð okkar hjá Skagafjarðardeild 4x4.
Kv Skemmtinefndin.

12. september 2011 - 21:18
Fyrsti fundur haustsins
Félagar athugið fundur verður haldinn miðvikudaginn 14 sept kl 20 í Kjarnanum.
Fundarefni:
Dagskrá vetrarins, komandi vinnuferð í Skiptabakka og fleira.
kv Stjórn

22. ágúst 2011 - 15:49
Vinnuferð Skagafjarðardeildar
Jæja þá er vinnuferð sem farin var 12 - 14 ágúst afstaðin og má með sanni segja að skálinn okkar hefur heldur betur tekið stakka skiptum.

Klósettið fjarlægt og eldhúsið stækkað sem því nam.

Ekki lengur þörf á að bakka inná klósettið því það nýja mikið rúmbetra en það gamla.

Málaðr voru hluti af gluggonum og skálinn þrifinn hátt og lágt, ásamt því að vaskað var upp allt leirtau þannig að allt er glansandi fínnt.

kv stjórn

3. mars 2011 - 20:01
Stórferð 2011
Jæja þá er þetta allt að bresta á.

Fimmtudaginn 10 mars kl 19 verður lagt af stað frá Sauðárkróki.
Farið verður fram Blöndudal í Hveravelli og gist þar.

Föstudagur 11mars kl 9 lagt af stað og stefnan sett á miðju Íslands. Hérna verða grillaðir miðjuborgarar eða pylsur allt eftir því hvað menn vilja.
Af miðjunni verður farið austur með Hofsjökli og er stefnan sett á Setrið þar sem gist verður.

Laugardagur 12 mars lagt verður af stað kl 10-11 og er stefnan að fara Klakkinn suður fyrir Kerlingarfjöll og enda í Gíslaskála þar sem sameiginlegur matur verður.

Sunnudagur kl 10 stefnan sett á Skiptabakka.
kv ferðanefnd Hilmar og Rúnar Már

16. febrúar 2011 - 21:19
Þorrablót
Jæja þá er komið að því. Þorrablótið er núna um helgina 18 - 20 feb. Farið verður í Laugarfell á föstudaginn, lagt verður af stað kl 19 frá Ábæ. Á laugardeginum skreppum við inná miðju og yfir í Ingólfsskála og þaðan niður í Skiptabakka þar sem við munum borða dýrindis þorramat frá Ólafshúsi að vanda.

kv stjórn

9. febrúar 2011 - 16:40
febrúarfundur
Jæja félagar nú er komið að febrúarfundinum okkar.
miðvikudaginn 9 feb kl 20 í Kjarnanum.
Skráning á þorrablót og í stórferð.
Fjallað verður um okkar aðkomu að stórferð sunnlendinga í mars.

kv stjórn

24. desember 2010 - 06:47
Jólakveðja
Kæru félagar við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju jeppa ári.

kv stjórn

7. desember 2010 - 18:58
Fundur 8 des
Félagar athugið fundur verður haldinn 8 des nstkomandi kl 20 í Kjarnanum.

Fundarefni. Myndasýning piparkökur og spjall um stórferðina.
Kv stjórn

4. nóvember 2010 - 20:08
Árshátíð 4x4
Félagar nú er komið að því árshátíð Skagafjarðardeildar verður haldin á Mælifelli 13 nóv næstkomandi, húsið opnar kl 19:30.

Matseðillinn hljóðar svona
Forréttur
Sjávarrétta súpa m/brauði

Aðalréttur
Gratíneraður fiskréttur
Ofnbakað Lambalæri
Kalkúnabringur í appelsínusósu

Eftirréttur
Rjómaísrúlla í konfektsósu


Að lokinni árshátíð verður haldið af stað í Varmahlíð með rútu í Miðgarð á Ball með Björgvini Halldórs. Siggu Beinteins, Grétari úr stjórninni og einhverjum fleirum

Miðaverð er aðeins litlar 3.000 kr fyrir alla þessa skemmtun.

Skráning hjá Benna formanni í síma 8254570


28. september 2010 - 16:57
Vonarskarð 2 okt 2010
Félagar athugið blása á til ferðar laugardaginn 2 okt næstkomandi á jarðarför ferðafrelsis okkar um hálendið.

Farið verður snemma á laugardagsmorgunin frá Króknum og ekið sem leið liggur í Laugarfell og þaðan í Vonarskarð.

Eftir jarðarför verður farið í Skiptabakka og eldaður sameiginlegur veislumatur.

Skráning í gistingu og mat hjá Benna formanni í síma 825-4570 825-4570 fyrir kl 12 á fimmtudag 30 sept.

kv stjórn Skagafjarðardeildar

Offt er þörf en nú er nauðsyn að sýna samstöðu.

11. september 2010 - 08:33
Dagskrá vetrarins
Félagar athugið að núna eru komnar dagsetningar á þá föstu viðburði sem eru á dagskrá í vetur hjá Skagafjarðardeild undir tilkynningar hægra megin á siðunni kv stjórn

8. september 2010 - 14:42
Fundur í kvöld 8 sept
Félagar athugið fyrsti fundur vetrarins verður í kvöld 8 sept kl 20 í Kjarnanum.
Fundarefni. Vetrarstarfið, vinnuferð í Skiptabakka
kv Stjórn

24. ágúst 2010 - 12:32
Skiptabakkaskáli
Eftir síðustu vinnuferð er búið að grafa niður brunninn og tengja heim í hús. Hægt er orðið að dæla beint í vatnstankana undir húsinu núna. Panillinn á veggjonum sem losnaði í vetur var lagaður ásamt því að dreyft var áburði á móa og mela í kring um skálann.

Gaman er að sjá hversu vel hefur tekist til með uppgræðslu og er allt að byrja að grænka.

Einhverjir hestahópar hafa verið á ferðinni í sumar en gaman væri ef félagar 4x4 myndu vera duglegri við að nýta sér þennan frábæra skála sem við eigum.

Framhaldið er að nú þarf að finna helgi sem fyrst til að klára að ganga frá fyrir veturinn.

kv stjórn

30. júní 2010 - 22:33
Áburðar og vinnuferð
Félagar athugið helgina 2-4 júlí verður farið í hina árlegu áburðarferð í Skiptabakka. Skráning hjá Benna í síma 8254570 fyrir kl 12:00 svo hægt sé að kaupa mat á grillið.
Kv stjórn

7. júní 2010 - 20:49
Bjórkvöld
Bjórkvöld verður haldið föstudaginn 11 júní kl 20 á Mælifelli Pizzahlaðborð og kaldur á kantinum á vægu verði. Mynda og videosýning frá liðnum vetri.
kv Stjórn

25. apríl 2010 - 20:04
aðalfundur
Aðalfundur Skagafjarðardeildar verður haldin 12 maí næstkomandi kl 20 í Kjarnanum
venjuleg aðalfundarstörf
kaffiveitingar
kv stjórn

4. apríl 2010 - 16:19
Apríl fundur
Næsti fundur verður miðvikudaginn 7 apríl kl 20
Fundarefni:
Stórferðin rætt og sú gagnrýni sem upp hefur komið.
myndir og video úr ferðinni
kv stjórn

19. mars 2010 - 18:57
Stórferð 2010
Jæja félagar nú er síðasti dagur í dag 19 mars 2010.
Greiða þarf þátttökugjald 5500 inná reikning deildarinnar með skýringu stórferð
161-26-5911 161-26-5911 kt.591107-1000.
kv ferðanefnd.

2. mars 2010 - 18:40
mars fundur 4x4
Næsti fundur 4x4 veður haldin í Kjarnanum 3 mars næstkomandi kl 20.

Fundarefni:
Video úr þorrablótsferð
Skráning á fundinn á Akureyri föstudaginn 5 mars kl 20.
Skráning í stórferð.

kv stjórn

25. febrúar 2010 - 15:48
Stórferð 2010
Félagar athugið stórferðin í ár verður farinn 26 - 28 mars næstkomandi.

Fara á í Setur föstudaginn 26 mars þar sem gist verður. Úr Setrinu verður farið snemma á laugardeginum í Réttartorfu og gist þar. Heimleiðin ákvarðast af færi og veðri en reiknað er með að fara hálendið heim.

Nánari upplýsingar og skráning hjá Stebba Guðmunds í síma 895-4405 eða á póstfang unaas@simnet.is

17. febrúar 2010 - 21:49
Þorrablót brottför
Áætlað er að leggja af stað um kl 19 á föstudagskvöldið.
kv stjórn

13. febrúar 2010 - 23:52
Þorrablót 2010
Jæja þá er komið að því skráningar fresturinn er liðinn og nú vera allir að muna eftir að greiða fyrir miðvikudaginn 17 feb.

Gjaldið er 6600 en 5900 fyrir þá sem eru í ferðafélagi Íslands innifalið er þorramatur á laugardagskvöldinu og gisting í Laugafelli og Skiptabakka.


Greiðist inn á reikning 161-26-5911 kt.591107-1000.
Nánari upplýsingar hjá formanni í síma 899-5204.

kv stjórn

3. febrúar 2010 - 22:34
Þorrablót 2010
Þórrablót Skagafjarðardeildar verður haldið laugardaginn 20 febrúar næstkomandi í Skiptabakka.

Gisting Laugafelli 2800 en 2100 fyrir félagsmenn FÍ
gisting í Skiptabakka 1500 og þorramatur 2300
í allt 6600 kr en 5900 ef menn eru í Ferðafélagi Íslands.

Ferðaplan. Farið verður í Laugarfell á föstudeginum 19 feb og gist þar. Á laugardeginum verður farið að miðju Íslands og þaðan í Ingólfsskála og áfram í Skiptabakka.

Allar upplýsingar og skráning hjá formanni í síma 899-5204 fyrir 12 feb næstkomandi

2. febrúar 2010 - 18:30
Febrúar fundur
Næsti fundur verður haldin miðvikudaginn 3 feb næstkomandi kl 20 í Kjarnanum.

fundarefni:
Skráning á þorrablót
Skráning á fund á Akureyri 12 feb næstkomandi.
Nánari upplýsingar um stórferð 2010.
Farið verður yfir hættur á Jöklum og staðsetningu á sprungusvæði á Langjökli
kv Stjórn

23. janúar 2010 - 10:43
Fjölskyldudagurinn
Rúmmlega 40 manns mættu og fór Guðjón Marteins í skoðunarferð með okkur þar sem flugvélar voru skoðaðar frá a - ö. Eftir það fórum við á skauta og sýndu félagar hversu miklir snillingar þeir eru.
Að lokum fórum við og borðuðum á Greifanum.

Viljum við nota tækifærið og þakka Guðjóni fyrir skemmtilegan og fróðlegan dag.

kv Stjórn

15. janúar 2010 - 21:48
Fjölskyldudagurinn
Félagar athugið mætum á sunnudaginn 17 jan kl 12:00 á akureyrarflugvelli hjá Guðjóni Marteins
kl 14:00 er farið á skauta í Skautahöll Akureyrar
Kl 17:00 er pizza, pasta hlaðborð á Greifanum

Kv stjórn

12. janúar 2010 - 19:11
Fjölskyldudagurinn
Kæru félagar
Við ætlum að fara á Akureyri, skoða flugvélar undir leiðsögn Guðjóns Marteinssonar flugvirkja síðan ætlum við að fara á skauta og endum síðan á Greifanum þar sem verður hlaðborð.

Nánari upplýsingar og skránig á fundinum 13 jan eða hjá Valda í síma 8679044 fyrir fimmtudag 14 jan kv stjórn

8. janúar 2010 - 17:40
Fjölskyldudagurinn
Kæru félagar sunnudaginn 17 janúar verður fjölskyldudagurinn haldin nánari upplýsingar á fundinum 13 jan næstkomandi kv stjórn

4. janúar 2010 - 22:23
Janúar fundur Skagafjarðardeildar
Næsti fundur Skagafjarðardeildar verður haldinn miðvikudaginn 13 jan kl 20 í Kjarnanum.

Fundarefni:
Fjölskyldudagurinn
Þorrablót
Timasetning á stórferð.
Sýning á nýju myndbandi
kv Stjórn

24. desember 2009 - 15:57
Gleðilega hátíð
Kæru félagar óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
kv Stjórn

7. desember 2009 - 17:42
Vinnuferðin í Skiptabakka
Jæja nú er búið að fara með Listerinn í Skiptabakka og tengja allt. Ekki annað hægt að segja en þetta svínvirkar komin útiljós og tenglar inni. Svefnloft var einnig græjað. Píparinn sá um að koma upp handklæða ofni á nýja klósettinu og þar fyrir framan.

Nálægt 40 manns voru saman komnir á laugardagskvöldinu og borðuðu veislumat en nokkrir héldu heim á leið um kvöldið. Lítill snjór var á leiðinni en samt þannig að menn fengu smá útrás.
kv stjórn

1. desember 2009 - 16:51
Desember fundur
Næsti fundur verður haldinn miðvikudaginn 2 des kl 20 í kaffistofu Kjarnans (Nyja bílaverkstæðið)
fundarefni:
Video og myndasýning
Skráning í aðventuferð / Vinnuferð
kv stjórn

28. nóvember 2009 - 10:11
Aðventu og vinnuferð í Skiptabakka
Sælir félagar
Aðventuferð / Vinnuferð verður farin í Skiptabakka helgina 4-6 des næstkomandi uppl. og skráning hjá Hilmari 8995204 og Rúnari 8612673 fyrir fimmtudaginn 3 des
kv stjórn

14. nóvember 2009 - 08:17
Árshátíðin 14 nóv 2009
Árshátíðin okkar er nú rétt að bresta á og allt klárt skemmtiatriðin klár og maturinn í pottonum.
Húsið opnar kl 20 og hefst hátíðin kl 20:30
kv stjórn

10. nóvember 2009 - 11:40
Sýningin Kraftur 2009
Jæja félagar. Í gærkveldi komu saman nefndir sem vinna að því að koma öllu í rétt horf fyrir sýninguna. Reiknum með um 25-26 bílum frá okkur. Byðjum alla sem eiga eftir að skila inn gögnum um jeppana að gera það sem fyrst.
Kv stjórn Skagafjarðardeildar

2. nóvember 2009 - 19:12
Nóvember fundur
Næsti fundur Skagafjarðardeildar verður haldinn miðvikudaginn 4 nóv kl 20 í Kjarnanum(Nýja bílaverkstæðinu)
fundarefni.
Skráning á árshátíð
Kraftur 2009 farið verður yfir hvaða bíla á að sýna og fl
Farið yfir hvernig málin standa með Listerinn.
kv stjórn

31. október 2009 - 09:47
Listerinn framleiðir rafmagn
Sælir félagar.
Þá er vélinn farinn að malla og framleiða rafmagn. Kláruðum að stilla með Listerfræðingnum að sunnan.
Datt í gang og fór létt með að snúa 9 kw blásaranum okkar.
kv Stjórn

30. október 2009 - 06:40
Rafstöðin kominn saman
Jæja félagar þá er rafstöðin komin saman en miðvikudagskvöldið fór í að klára hana. Í dag föstudag kemur sennilega Hafsteinn Listerfræðingur og stillir hana fyrir okkur.
kv Stjórn

28. október 2009 - 17:09
Árshátíð 2009
Kæru félagar,
Nú er komið hinni árlegu árshátíð Skagafjarðardeildar 4x4. Óþarfi þykir að telja upp þau skemmtiatriði sem boðið verður uppá, en þeir sem létu sjá sig í fyrra vita hvers er að vænta frá skemmtinefndinni. Félagar þið eruð hvattir til að fjölmenna og taka með sér maka og aðra góða gesti.
Miðaverð er einungis 3000 krónur og innifalið í því er matur, skemmtiatriði í heimsklassa og síðast en ekki síst 80's ball með hljómsveitinni Spútnik.
Miðar greiðast við inngang.
Skráning hjá Jóa 894-6200 eða Valda 867-9044.

Kveðja,
Skemmtinefndin

Matseðill kvöldsins
Forréttur
Graflax á salatbeði með ristuðu brauði og sinnepssósu

Aðalréttir
Gratíneraður fiskréttur
Folaldapiparsteik í heilsteiktum vöðva
Ofnsteikt lambalæri

Eftirréttur
Heit súkkulaðikaka með rjóma

27. október 2009 - 14:36
Kraftur 2009





Smellið á myndina fyrir nánari upplýsingar.

27. október 2009 - 06:47
Áfram haldð með rafstöðina
Jæja félagar áfram héldum við með rafstöðina í gærkvöldi og er þetta allt að smella.
Ætlum að hittast á miðvikudagskvöldið kl 20 í sútun.
kveðja stjórn Skagafjarðardeildar

20. október 2009 - 06:45
Næsta vinnukvöld
Sælir félagar
Vel gekk í gærkveldi og allt að gerast í samsetningu á rafstöðinni, stimplarnir komnir í og næsta mál að plana heddin.

Næsta vinnukvöld verður mánudagskvöldið 26 okt kl 20 í Sútun

kv Stjórn Skagafjarðardeildar

16. október 2009 - 06:17
Vinnuferð
Félagar athugið fyrirhugað er að fara í vinnuferð í Skiptabakka föstudaginn 30 okt næstkomandi
nánari upplýsingar síðar
kv stjórn Skagafjarðardeildar

15. október 2009 - 14:38
Rafstöð
Vinnukvöld verður haldið mánudaginn 19 okt kl 20 í Sútun.
kv Stjórn Skagafjarðardeildar

12. október 2009 - 20:08
Októberfundur 2009
Fundur verður haldinn miðvikudaginn 14.okt kl:20:00 í Kjarnanum (Nýja bílaverkstæðið)

Fundarefni:
Landsfundurinn í Kerlingarfjöllum.
Kynning á ferðum sem farnar verða á vegum móðurfélagsins.
Skráning á Árshátíð.
Vinnuferð í Skiptabakka.

Kv.
Stjórn Skagafjarðardeildar

1. september 2009 - 23:11
Næsti fundur
Fyrsti fundur eftir sumarfrí verður haldinn miðvikudaginn 9. september í Kjarnanum, nýja bílaverkstæðinu.

Fundarefni:
Farið verður yfir hvað er búið og hvað er eftir að gera á Skiptabakka í sambandi við nýbygginguna.
Dagskrá haustsins.
Árshátíð og fleira.

2. júní 2009 - 16:47
Vinnuferð í Skiptabakka
Áætlað er að fara í vinnu og áburðarferð í Skiptabakka helgina 19. – 21. júní næstkomandi.
Nánari upplýsingar hjá stjórn.

23. maí 2009 - 13:20
Bjórkvöld
Bjórkvöld verður haldið föstudagskvöldið 29. maí, kl.20:00 á Mælifell restaurant.
Video og myndasýningar frá liðnum vetri.
Kaldur og pizza á tilboði.

Kv.
Stjórn Skagafjarðardeildar

6. maí 2009 - 19:57
Aðalfundur 2009
Aðalfundur Skagafjarðardeildar 4x4 verður haldinn miðvikudaginn 13. maí 2009, kl. 20:00,
í Sveinsbúð Björgunarmiðstöð Skagfirðingarsveitar Borgarröst 1, Sauðárkróki.

Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf

Kv.
Stjórn

2. apríl 2009 - 16:17
Næsti fundur
Næsti fundur Skagafjarðardeildar verður haldinn föstudaginn 3.apríl, kl.20:00, í Húsi frítímans, Sæmundargötu 7.
Fundarefni:
Mynda og videosýningar frá þorrablótsferð, miðjuferðinni og úr stórferð Skagafjarðardeildar, ásamt fleiru.

Kv.
Stjórn Skagafjarðardeildar

5. mars 2009 - 20:15
Stórferð 2009
Þeir sem ætla í Stórferðina í næstu viku verða að greiða fyrir ferðina í síðasta lagi á morgun, föstudaginn 6.mars. Gjaldið er Kr.12.600,- nema fyrir þá sem eru í ferðafélaginu, þá er gjaldið Kr.9.200,-. Greiðist inn á reikning 161-26-5911, kt.591107-1000.

26. febrúar 2009 - 12:41
Miðjuferð
Skráning í Miðjuferð hjá Rúnari í síma 861- 2673 eða Smára í síma 840-0520.
Lokaskráning fyrir miðvikudaginn 4. mars.

26. febrúar 2009 - 12:39
Opinn fundur 4x4
Næstkomandi föstudagskvöld (27/2) verður haldinn opinn félagsfundur á Sauðárkróki, nánar tiltekið á "Mælifell Restaurant" og hefst hann klukkan 20:00.
Dagskrá:

1. Innlegg frá stjórn Ferðaklúbbsins 4x4

2. Innlegg frá stjórnum annarra þeirra deilda sem mæta (Eyfirðingar, Skagfirðingar, Húnvetningar, Vesturlandsdeild, Húsvíkingar).

3. Sjúkragögn í bíla, kynning á vegum Eyfirðinga.

4. Ferlamál, Jón Snæland.

5. Miðjuferðin, Jón Snæland.

6. Bílabreytingar og ESB, fyrirlestur sem haldinn var á félagsfundi í Reykjavík fyrr í vetur.

7. Vestfjarðaferðin, kynning.

8. Myndbandasýning.


18. febrúar 2009 - 23:16
Fundur
Fundur verður haldinn 27. feb. næstkomandi með stjórn móðurfélagsins ásamt ferlaráði, Eyfirðingum, Húnvetningum, Húsvíkingum og Róbert Marshall.
Fundarefni: Reglugerð um ESB vegna bílabreytinga, miðjuferðin og fleira.

Áætlað er að halda fundinn á Mælifelli restaurant kl.20:00, föstudaginn 27. feb.

Nánari upplýsingar síðar.

Kv.
Stjórn Skagafjarðardeildar

16. febrúar 2009 - 20:40
Þorrablót 2009
Þeir sem ætla á þorrablót Skagafjarðardeildar 4x4 í Skiptabakka 20.-22. febrúar nk. verða að greiða fyrir miðvikudaginn 18. febrúar svo hægt sé að panta þorramatinn kr.4.000,- inn á reikning: 161-26-5911 Kt.591107-1000. Setjið sem skýringu þorrablót.

Innifalið er matur Kr.2.200,- og gisting Kr.900,- nóttin. Þeir sem mæta á laugardeginum borga þá bara fyrir eina nótt.

Nánari upplýsingar gefur Benni í síma 825-4570.

13. janúar 2009 - 14:57
Fjölskyldudagurinn 2009
Fjölskyldudagurinn verður haldinn sunnudaginn 18. jan. og er reiknað með að mæta um kl.13:00 í keiluhöllina á Akureyri.
Byrjað verður á að fara í keilu og síðan verður fengið sér að borða á staðnum, en boðið verður uppá pizzur fyrir börnin og Creps pönnukökur, það er fylltar pönnukökur fyrir fullorðna.
Eftir hressingu er um að gera að taka annan leik í keilu og rúlla síðan heim í rólegheitum.

Skráning hjá Valda Péturs í síma: 867-9044 eða Hilmari í síma: 899-5204 fyrir fimmtudaginn 17. jan.

Kv.
Skemmtinefndin

3. desember 2008 - 11:01
Næsti fundur
Næsti fundur Skagafjarðardeildar verður miðvikudaginn 7. janúar, kl.20:00, í kaffistofu Mjólkursamlagsins.

Fundarefni:

Skráning í stórferð 2009
Fjölskyldudagurinn
Staðsetning á þorrablóti uppástungur

Kveðja,
Stjórn

25. nóvember 2008 - 15:50
Aðventuferð 2008
Aðventuferð Skagafjarðardeildar verður farin helgina 28.nóv. - 30.nóv. í Skiptabakka. Einhverjir ætla að fara af stað á föstudagskvöldið og aðrir um hádegi á laugardag. Sameiginlegt grill á laugardagskvöldið og því þarf að tilkynna þátttöku til Benna í síma: 825-4570 í síðasta lagi á fimmtudag.

31. október 2008 - 21:32
Árshátíð Skagafjarðardeildar 2008

Kæru félagar og Kobbi.
Nú er komið að því að félagar Skagafjarðardeildar 4x4 sameinist nú í þessu erfiða þjóðfélagsástandi og mæti á stórfenglega árshátíð þann 15. nóvember klukkan 20:00 á skemmtistaðnum Mælifelli.
Boðið verður upp á fágætlegt kreppufóður og verða guðaveigarnar fengnar frá myrkustu héruðum Síberíu en þær voru sendar með kveðju frá foringja Pútín. Engu var til sparað við þegar ráðnir voru skemmtikraftar til að koma fram á hátíðinni, veislustjórar verða hinir héraðsþekktu Tímon og Púmba og þeim til halds og trausts var fenginn mikill frama og efnamaður, landsþekktur frá Fríríkinu Jakopsky Snébrvic.
Félagsmenn er hvattir að taka með sér gesti en vanda skal valið. Miðaverði verður stillt í hóf.
Þátttaka tilkynnist til Jóa (frá Enni) í síma 894-6200 eða Valdimars í síma 867-9044.
Miðaverð hefur verið ákveðið, en það er einungis Kr.2.500,- á mann fyrir bæði mat og ball.

Matseðill kvöldsins:

Forréttur: Kjúklingasalat

Aðalréttir: Jurtakryddað lambalæri
Bayonnesskinka
Gratineraður fiskur
Ásamt viðeigandi sósum og meðlæti

Eftirréttur: Eplakaka M/rjóma/Ís

Húsið opnar kl.19:00 og miðaverð verður innheimt við innganginn. Dagskrá hefst um kl.19:30.

7. ágúst 2008 - 11:58
Vinnuferð í Skiptabakka
Vinnuferð verður farin í Skiptabakka 23.-24. ágúst næstkomandi þar sem haldið verður áfram með viðbygginguna. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hjá Hilmari 899-5204 eða Rúnari 861-2673 fyrir miðvikudaginn 20. ágúst svo hægt sé að kaupa á grillið.

Kveðja,
Stjórn

18. júní 2008 - 14:56
Áburðarferð 2008
Áburðar- og vinnuferð 4x4 í Skiptabakka er á dagskrá helgina 20.-22. júní. Grillveisla á laugardagskvöldið í boði klúbbsins. Skráning hjá Stebba Guðmunds í síma: 895-4405.

22. maí 2008 - 22:55
Bjórkvöld 2008
Bjórkvöld Skagafjarðardeildar 4x4 verður haldið föstudagskvöldið 30. maí nk. Kaldur á tilboði og pizzur.
Arctic Trucks myndband sýnt og myndir frá liðnum vetri.
Heiðursfélagi okkar krýndur.

Takið kvöldið frá.

Kv.
Stjórn

29. apríl 2008 - 14:58
Aðalfundur
Aðalfundur Skagafjarðardeildar 4x4 verður haldinn miðvikudaginn 7. maí næstkomandi kl 20:00 stundvíslega í Náttúrustofu Norðurlands Vestra, Aðalgötu 2.

Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf

Kaffiveitingar

Kv.
Stjórn Skagafjarðardeildar

29. apríl 2008 - 14:54
Myndir frá Setursferð
Garpurinn sjálfur smellti af nokkrum myndum í Setursferðinni þegar að ljósavélin var sótt. Myndirnar má nálgast hér.

3. apríl 2008 - 23:47
Nýjar myndir
Loksins eru einhverjar myndir frá Stórferðinni komnar inn. Svo var Jón Gauti þónokkuð duglegur að taka myndir í ferðinni og eitthvað af þeim er hægt að nálgast með því að smella hér.

3. apríl 2008 - 20:46
Fundur hjá Eyjarfjarðardeild
Eyfirðingar bjóða okkur að mæta á fund hjá þeim 8.apríl nk. kl.20:00 í fundarsal Hótel KEA. Meðal fundarefnis verða kynningar frá Arctic Trucks og Haftækni auk þess sem það verður myndasýning frá segulpólsferð Top Gear. Sjá nánar hér.

28. febrúar 2008 - 00:48
Nýjar myndir
Myndir frá Þorrablótsferðinni eru komnar inn.

18. febrúar 2008 - 16:30
Þorrablót
Gjald vegna þorrablóts er kr.6.000,- og þarf að greiðast fyrir miðvikudag. Gjaldið þarf að leggjast inn á reikning 310-13-14443, kt. 250161-4419.

14. febrúar 2008 - 20:34
Stórferð 6.-9. mars
Staðfestingargjald vegna stórferðar í Kverkfjöll 6.-9. mars er kr.6.000,- og þarf að greiðast fyrir 25. febrúar. Gjaldið þarf að leggjast inn á reikning 310-13-14443, kt. 250161-4419.
ATH. Minni á að allir þurfa að vera komnir með Shell kortin og búnir að láta opna þau fyrir Kárahnjúkasjálfsala. Uppl. hjá Benna í síma: 825-4570.

5. febrúar 2008 - 18:40
Næsti fundur
Næsti fundur Skagafjarðardeildar verður haldinn 6. febrúar næstkomandi kl.20:00 á kaffistofu Mjólkursamlagsins.

Fundarefni:
Þorrablót 22.-24. febrúar - skráning.
Stórferð - Allir sem ætla að fara í stórferð eru vinsamlegast beðnir að mæta.

kv. Stjórn Skagafjarðardeildar

17. janúar 2008 - 11:00
Miðjuferð
Miðjuferð 4x4 verður farin helgina 19.-20. janúar n.k. Lagt verður af stað á laugardegi og gist í Skiptabakkaskála um nóttina.
Þeir sem ætla í þessa ferð og ætla að gista í Skiptabakkaskála á laugardagskvöldið eru beðnir um að tilkynna þátttöku til Stebba í síma: 894-6233.

10. janúar 2008 - 21:14
Fjölskyldudagur
Fjölskyldudagur Skagafjarðardeildar 4x4 verður haldinn laugardaginn 12. janúar n.k. Áætlað er að fara til Akureyrar og eyða deginum þar.
Dagskrá:
10:00 Mæting hjá Ábæ(N1)
11:30 Holtsel í Eyjafirði heimsótt og ísgerðin skoðuð
13:00 Farið á skauta á Akureyri
? Farið í sundlaugina á Akureyri
17:00 Pizzuveisla í boði klúbbsins

Engin skráning er nauðsynleg, aðeins að láta sjá sig!

Þorrablót 2011
Fjölskyldudagurinn
Aðventuferð
Árshátið Skagafjarðardeildar
Vinnuferð
Stórferð 2011
Næsti fundur
Skiptabakkaskála læst